Lífið

Einn keppandi sendur heim í kvöld: „Alls ekki endirinn hjá þér“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Fjórir keppendur voru eftir fyrir kvöldið í kvöld. Nú er einn þeirra farinn heim.
Fjórir keppendur voru eftir fyrir kvöldið í kvöld. Nú er einn þeirra farinn heim. Stöð 2

Fjórði þáttur Idolsins í beinni útsendingu fór fram í Idolhöllinni í kvöld. Þátturinn var æsispennandi, fjórir keppendur mættu til leiks en aðeins þrír komust áfram í úrslitin. Einn keppenda þurfti því að taka poka sinn.

Ólíkt fyrri þáttum var ekkert þema heldur áttu keppendur að flytja eitt ástarlag og eitt lag sem dómarar höfðu valið fyrir þau. Eins og síðustu þrjú úrslitakvöld voru örlög keppenda í höndum áhorfenda en ekki dómara og munu úrslitin í næstu viku ráðast í símakosningu.

Höskuldarviðvörun ef þú hefur ekki horft á Idol þátt kvöldsins - ekki lesa lengra.

Þegar niðurstaða úr símakosningunni var kynnt kom í ljós að það var Stefán Óli sem hlaut fæst atkvæði í símakosningu en hann söng lögin Anyone með Justin Bieber og Leave a Light On með Tom Walker.

Stefán Óli 900-9003

„Þú getur sungið maður,“ sagði Daníel Ágúst um frammistöðu Stefáns. Þá sagði Birgitta að það hefði verið geggjað að fylgjast með Stefáni í keppninni, hann væri með geggjaða rödd og hefði farið vaxandi með hverjum þættinum.

Úrslitin af Idol fara fram næsta föstudagskvöld og verða í beinni útsendingu á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.