Flutningar Grindvíkinga hafi lítil áhrif á fasteignamarkaðinn í borginni
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði að eins og talað væri á Íslandi mætti halda að ríkissjóður væri á „framfæri einhverja annarra en okkar sem þjóðar. Það er ekki hægt að eyða sömu krónu tvisvar.“](https://www.visir.is/i/C642E9A9A4898B09AEB3F49A10E5E5B89744C2DFD6A4B328257EB6AB5F8F299E_713x0.jpg)
Seðlabankastjóri telur að brottflutningur fólks frá Grindavík vegna jarðhræringa muni ekki hafa mikil áhrif á fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Áhrifin verði mögulega bundin við Reykjanes og nágrenni. „Það kæmi ekki á óvart ef íbúar vilja búa þar nálægt. Ég held að áhrifin verði aðallega þar í kring.“
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/F0F4EF3BE3C1C8636D88F4C931D6429EFC6EE1BC21D2A91561C4F4D82DB457B7_308x200.jpg)
Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs
Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið.
![](https://www.visir.is/i/EF4A4D8EA9ACD5DA9CE6637A934E90D34B1CFB934BA3A7AF653385C7AE65D362_308x200.jpg)
„Þú notar ekki sömu krónurnar tvisvar“
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála-og efnahagsráðherra, segir ljóst að aðgerðir til handa Grindvíkingum hafi áhrif á stöðu ríkisfjármála og þar með mögulegt útspil stjórnvalda í kjaraviðræðum.