Innherji

Sterkar vís­bendingar um yfir­burðastöðu Öl­gerðarinnar í vínsölu til stór­not­enda

Hörður Ægisson skrifar
Andri Þór Guðmundsson er stjórnarformaður Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar. 
Andri Þór Guðmundsson er stjórnarformaður Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar.  Vísir/Vilhelm

Samkeppniseftirlitið telur „sterkar vísbendingar“ um að Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda, en félagið er á þeim mörkuðum um tvisvar til þrisvar sinnum stærra en næstu keppinautar. Við rannsókn á kaupum Ölgerðarinnar á Gæðabakstri og Kjarnavörum lýstu margir keppinautar áhyggjum af því að aukin vörubreidd gæti gert félaginu kleift að styrkja enn frekar stöðu sína með því að tvinna saman sölu matvæla og drykkjarvara.


Tengdar fréttir

Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða

Ölgerðin hefur samið um kaup á öllu hlutafé Kjarnavara ehf. Kjarnavörur er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki landsins í sósum, sultum, grautum og smjörlíki. Þá á félagið Ísbúð Vesturbæjar. Heildarvirði félagsins er 3,97 milljarðar króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×