Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Hálfsjö flesta morgna. Ég er bóndi í mér eftir mörg sumur í sveit austur á Síðu og finnst best að koma eins miklu í verk og hægt er fyrir hádegi. Drjúg eru morgunverkin, eins og sagt er.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Við hjónin fengum frábæra kaffivél í brúðkaupsgjöf um árið og maðurinn minn er duglegur að dekra mig með góðum bolla á morgnana. Samhliða snýst morgunrútínan um að græja dæturnar tvær sem halda mér við efnið.
Það er merkilegt hvað vettlingar geta týnst oft á litlu heimili og það virðist alltaf alltaf vera gulur, rauður eða bangsadagur í leikskólanum sem reynir á skipulagsmálin, stundum á síðstu stundu!“
Hvaða lag fær þig alltaf til að komast í smá söng-gír og hækka í útvarpinu?
„Flottur Jakki með Ragga Bjarna tryllir mig á dansgólfinu en ég æfði dans í gamla daga og elska góða samkvæmissveiflu. Sama gildir um Gaggó Vest með Eiríki Hauks.
Annars minnir Sing með Travis mig á góðar stundir Kvennaskólaáranna og Ellý Vilhjálms er ómissandi í útileguna á björtum sumarnóttum.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Orkumálin eru fjölbreytt og enginn dagur eins.
Þessa dagana hef ég verið vakin og sofin yfir hitaveitumálum á Reykjanesi vegna eldgossins sem spyrja ekki um hefðbundinn vinnudag og kalla á mikið og gott samstarf við Almannavarnir og fyrirtækin á svæðinu. Saman vinnum við að því að tryggja orkuöryggi íbúa en staðan á þessum köldu vetrar dögum minnir okkur á að heita vatnið, sem færir hlýju í hvert hús, er sannkallað gull okkar Íslendinga.
Undir Orkustofnun falla einnig verkefni er varða auðlindir vatnsins og jarðefna sem við leggjum okkur fram við að séu nýtt af alúð fyrir samfélagið og framtíðina.
Svo kenni ég líka stöku námskeið við minn gamla vinnustað við Harvard háskóla, þar sem orkumál eru meðal annars í fyrirrúmi, og styð jafnréttismálin í gegnum „Project Girls for Girls” sem ég stofnaði á námsárum en starfar nú í yfir tuttugu ríkjum.
Það er semsagt aldrei skortur á verkefnum en oft skortur á tíma!“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Byrjun dags, milli hálf átta og rúmlega níu, fer oft í verkefni sem krefjast næðis og einbeitingar. Síðan taka tölvupóstar við ásamt fundum dagsins.
Ég reyni að raða fundum utanhúss sem mest seinni partinn til þess að slíta daginn ekki of mikið í sundur.
Samvinna við mitt góða fólk hjá Orkustofnun er mér ómetanlegt og það besta við starfið í heild er að fá að vinna með fjölbreyttum hópi fólks um allt land. Þannig gerast mikilvægir hlutir smátt og smátt.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég rokka milli þess að fara nánast að sofa um klukkan tíu eða nær miðnætti eftir því hvernig dagurinn spilast.
Til endurnæra huga fyrir svefn finnst mér best að komast í útiveru eins og góða göngu eða taka lag á harmónikkuna sem kallar sérstaklega á mig ef stutt er í gigg á vegum „Baravið” dúettsins sem ég tilheyri.
Svo teygjast kvöldin stundum ef við dettum inná góðan þátt. Ég var að klára þættina „Afturelding“ sem er strangheiðarlegt íslenskt efni sem fékk mig oft til að skella uppúr. Mæli með!“