„Of margir Palestínumenn dóu í dag“ Samúel Karl Ólason skrifar 29. febrúar 2024 21:36 Hlúð að fólki á gólfi Shifa sjúkrahússins í Gasaborg í dag. AP/Mahmoud Essa Talið er að minnsta kosti 112 hafi dáið og hundruð hafi slasast og eða særst á Gasaströndinni síðustu nótt þegar verið var að flytja matvæli og neyðarbirgðir á svæðið. Palestínumenn segja ísraelska hermenn hafa skotið á þvögu fólks sem stöðvaði vörubílanna með birgðirnar. Búist er við að tala látinna muni hækka. Mikill troðningur varð þegar þúsundir manna ruddust að bílunum en gífurleg neyð er á svæðinu og mikill skortur á matvælum og öðrum nauðsynjum. Ísraelar hafa komið í veg fyrir umfangsmikla birgðaflutninga til fólksins á Gasa og hafa Sameinuðu þjóðirnar og aðrir varað við hungursneyð. Verið var að flytja birgðir á um þrjátíu bílum og var stefnan sett á norðurhluta Gasastrandarinnar. Þegar bílarnir nálguðust Gasaborg um klukkan fjögur í nótt streymdi fólk að bílalestinni og fór að taka matvæli og aðrar vöru af bílunum. Margir tróðust undir og einhverjir urðu undir bílunum þegar ökumenn þeirra reyndu að komast á brott. Atburðir dagsins eru enn nokkuð óljósir en ásakanir um hverjir bera ábyrgð á dauðsföllunum ganga á víxl. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur hætt flutningi á aðstoð til norðurhluta Gasa vegna erfiðleika. Íbúar og starfsmenn hjálparsamtaka segja óöld ríkja á svæðinu. Ísraelar birtu meðfylgjandi myndband í dag. > Blaðamaður AP fréttaveitunnar ræddi við mann sem var á sjúkrahúsi með skotsár. Hann sagði fólk hafa heyrt af því að verið væri að flytja mat í gegnum svæðið og því hafi þó hópast að bílunum. „Við erum búin að vera að éta dýrafæði í tvo mánuði,“ sagði hann. Þegar fólk var að taka hveiti og dósir af bílunum segir hann að hermenn hafi skotið á fólkið. Fólk hafi hlaupið á brott og falið sig undir bílunum. Þegar skothríðin hætti hélt fólkið áfram að taka af bælunum og segir hann hermennina hafa þá hleypt af aftur. Hann fékk skot í fótinn og svo var einum vörubíl ekið yfir fótinn á honum. Töldu sér ógnað og skutu á fólk Forsvarsmenn heilbrigðisráðuneytis Gasastrandarinnar, sem stýrt er af Hamas-samtökunum, segja ísraelska hermenn hafa skotið á fólkið og hafa lýst atvikinu sem fjöldamorði. Því hefur einnig verið haldið fram að hermenn hafi skotið á bílalestina. Ísraelar viðurkenna að hermenn hafi hleypt af skotum en segja lang flesta sem dóu eða slösuðust hafa gert það í troðningnum sem myndaðist. Í frétt New York Times er haft eftir ónefndum ísraelskum embættismanni að hermenn sem hafi verið við suðurenda bílalestarinnar hafi skotið að fólki sem ógnaði þeim. Fyrst hafi þeir þó hleypt af viðvörunarskotum. Læknir sem blaðamaður NYT ræddi við segist hafa séð fjölda fólks með skotsár, auk líka sem lágu á götunni. Þau höfðu troðist undir eða orðið fyrir bílunum. Talsmaður Ísraels segir rangt að hermenn hafi skotið að bílalestinni. Skriðdrekar hafi verið á svæðinu svo hægt væri að tryggja að bílalestin kæmist til norðurhluta Gasastrandarinnar. Áhafnir þeirra hefðu horft á fólk troðið undir og hefðu skotið nokkrum viðvörunarskotum. We recognize the suffering of the innocent people of Gaza. This is why we are seeking ways to expand our humanitarian efforts. Watch the full statement by IDF Spokesperson RAdm. Daniel Hagari on the incident regarding the humanitarian aid convoy the IDF facilitated. pic.twitter.com/m6Pve3Odqw— Israel Defense Forces (@IDF) February 29, 2024 Matthew Miller, talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, sagði í kvöld að atvikið varpaði ljósi á gífurlega slæmt ástand á Gasaströndinni. Hann sagði það sýna bersýnilega nauðsyn þess að auka flæði mannúðaraðstoðar á svæðið. Örvæntingin væri augljós. „Of margir Palestínumenn dóu í dag,“ sagði Miller. Hann bætti við að ásættanlegur fjöldi dauðsfalla hefði verið núll. Miller sagði ráðamenn í Bandaríkjunum vera að leita frekari upplýsinga um atvikið og sömuleiðis reyna að koma á vopnahléi. 'The situation in northern Gaza is incredibly dire' says Matthew Miller, US Department of State spokesperson (@StateDeptSpox) https://t.co/00cyklNnC8 Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 and YouTube pic.twitter.com/HF9EqKuqQ1— Sky News (@SkyNews) February 29, 2024
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Leiðtogi Hamas í Katar segir samtökin reiðubúin til að vera sveigjanleg Stjórnvöld í Katar hafa sakað Ísraelsmenn um að stuðla að hungursneyð meðal Palestínumanna. Þau kalla eftir auknum þrýstingi af hálfu alþjóðasamfélagsins. 29. febrúar 2024 07:06 Ísraelsmenn og Hamas segja Biden hafa verið helst til bráðlátan Bæði Ísraelsmenn og fulltrúar Hamas-samtakanna segja Joe Biden Bandaríkjaforseta, sem sagðist í fyrradag vonast til þess að vopnhlé yrði í höfn eftir næstu helgi, hafa verið helst til bráðlátann þegar hann lét ummælin falla. 28. febrúar 2024 06:33 Viðræður um fangaskipti og vopnahlé mjakast áfram Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja að samkomulag um vopnahlé og lausn gísla í haldi Hamas myndi mögulega liggja fyrir eftir um það bil viku. „Við erum nálægt því. Við erum ekki búin ennþá. Ég vona að á mánudag verði vopnahlé í höfn,“ sagði forsetinn. 27. febrúar 2024 07:37 Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira
Leiðtogi Hamas í Katar segir samtökin reiðubúin til að vera sveigjanleg Stjórnvöld í Katar hafa sakað Ísraelsmenn um að stuðla að hungursneyð meðal Palestínumanna. Þau kalla eftir auknum þrýstingi af hálfu alþjóðasamfélagsins. 29. febrúar 2024 07:06
Ísraelsmenn og Hamas segja Biden hafa verið helst til bráðlátan Bæði Ísraelsmenn og fulltrúar Hamas-samtakanna segja Joe Biden Bandaríkjaforseta, sem sagðist í fyrradag vonast til þess að vopnhlé yrði í höfn eftir næstu helgi, hafa verið helst til bráðlátann þegar hann lét ummælin falla. 28. febrúar 2024 06:33
Viðræður um fangaskipti og vopnahlé mjakast áfram Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja að samkomulag um vopnahlé og lausn gísla í haldi Hamas myndi mögulega liggja fyrir eftir um það bil viku. „Við erum nálægt því. Við erum ekki búin ennþá. Ég vona að á mánudag verði vopnahlé í höfn,“ sagði forsetinn. 27. febrúar 2024 07:37