Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Árni Sæberg skrifar 28. október 2026 12:18 Ávinningur af fjársvikum af Landsbankanum var meðal annars notaður til að kaupa úlpur og tölvur. Vísir/Getty Umfangsmikil fjársvik tveggja manna af Landsbankanum hófust á því að annar þeirra millifærði fimmtíu þúsund krónur á hinn, án þess að peningur færi út af reikningi hans. Í framhaldinu sviku þeir út tæplega hundrað milljónir króna.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys, ásamt 68 öðrum, sem fréttastofa hefur undir höndum. Þar segir að þeir Saslauskas og Sodys hafi hagnýtt sér með kerfisbundnum og sviksamlegum hætti villu í viðskiptakerfi netbanka Landsbankans, sem var til komin vegna kerfisuppfærslu Reiknistofu bankanna og leiddi til þess að úttektir af bankareikningum voru tímabundið ekki færðar til lækkunar á ráðstöfunarheimild bankareikninganna Saslauskass. Alls hafi þeir millifært 120 milljónir króna af reikningi Saslauskass inn á aðra reikninga í hans eigu án þess að eiga innistæðu fyrir millifærslunum. 25 milljónir hafi þeir nýtt til að greiða inn á reikninga sem komnir voru í neikvæða stöðu og því hafi þeir alls svikið út um 96 milljónir króna. Fimmtán þúsund krónur algeng þóknun Langstærsti hluti ákærunnar, sem telur einar 149 blaðsíður, varðar peningaþvætti en auk aðalmannanna tveggja sæta 68 ákæru fyrir peningaþvætti, langflestir með því að taka við fjármunum með millifærslu og umbreyta í reiðufé eða flytja áfram með millifærslum og afla sér ólögmæts ávinnings af brotum aðalmannanna. Ólögmæti ávinningurinn var í fjölda tilfella fimmtán þúsund krónur fyrir að taka á móti 300 þúsund krónum en allur gangur var á því hversu miklum peningum fólkið hélt eftir. Þá þvættaði minnst einn fé gegn eftirgjafar spilaskuldar. Sumir ákærðu eru einnig ákærðir fyrir að koma því til leiðar að aðrir tóku þátt í peningaþvættinu. Þeirra á meðal er Íslendingur sem hlaut árið 2020 þungan dóm fyrir kókaínsmygl, sem þá var stærsta mál sinnar tegundar í Íslandssögunni. Hann er ákærður fyrir að fá tólf aðra Íslendinga til að þvætta pening. Gucci-taska og dýrar dúnúlpur Í ákærunni segir að aðalmennirnir tveir hafi, ásamt fleirum, nýtt hluta hinna stolnu fjármuna í eigin þágu, meðal annars með því að kaupa þrjár Canada Goose-dúnúlpur, tvær Macbook Air-fartölvur og tvo Iphone-farsíma. Þá er í ákærunni krafist að sambýliskona eins ákærðu sæti upptöku á Gucci-tösku. Ákæruvaldið krefst þess að ákærðu verði dæmd til refsingar og upptöku nánar tiltekinna fjármuna, sem þegar hafa verið haldlagðir og geymdir á þar til gerðum bankareikningi Héraðssaksóknara. Þá krefst Landsbankinn þess að Saslauskas og Sodys og greiði tæpar 96 milljónir í skaðabætur óskipt og að hinir ákærður, sem nutu ávinnings af brotum þeirra, greiði einnig 96 milljónir óskipt í skaðabætur.
Sviku hundruð milljóna út úr Landsbankanum Landsbankinn Dómsmál Tengdar fréttir Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með því að nýta galla hjá Reiknistofu bankanna. 27. október 2026 12:15 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Sjá meira
Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með því að nýta galla hjá Reiknistofu bankanna. 27. október 2026 12:15