Birti myndband af markinu sínu í hálfleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. mars 2024 10:30 David Datro Fofana fagnar marki sínu gegn West Ham United. getty/Vince Mignott Leikmaður Burnley var svo ánægður með mark sem hann skoraði gegn West Ham United að hann deildi myndbandi af því í hálfleik í leiknum í gær.
David Datro Fofana kom Burnley yfir gegn West Ham með glæsilegu marki á 11. mínútu. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks skoraði Konstantinos Mavropanos, miðvörður West Ham, svo sjálfsmark og Burnley leiddi því 0-2 í hálfleik. Fofana virðist hafa nýtt tímann í hálfleiknum til að fara í símann því hann endurtísti myndbandi af markinu sínu. Færslan var hins vegar fjarlægð skömmu seinna vegna réttindamála. Því miður fyrir Fofana og Burnley dugði glæsimark hans ekki til sigurs því West Ham kom til baka í seinni hálfleik og jafnaði í 2-2 sem urðu lokatölur leiksins. Fofana, sem er 21 árs Fílbeinsstrendingur, er í láni hjá Burnley frá Chelsea en hann kom til liðsins í janúar. Hann hefur skorað þrjú mörk í sjö leikjum fyrir Burnley. Staða Jóhanns Berg Guðmundssonar og félaga í Burnley er erfið en þeir eru í nítjánda og næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, tíu stigum frá öruggu sæti.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira