Hlunkurinn kominn í fantaform Kjörís 22. mars 2024 12:00 „Hlunkurinn verður áfram sami gamli hlunkurinn þó hann hafi lagt örlítið af og mun ekki valda neinum vonbrigðum." Gamli góði Hlunkurinn frá Kjörís er nú með nýju sniði.
Sumum neytendum kann að bregða í brún á næstunni þegar þeir fara að gæða sér á hlunki frá Kjörís en þessi klassíski frostpinni er orðinn skornari, hærri og grennri en hann var. Breytingarnar segir segir Elías Þór Þorvarðarson, sölu- og markaðstjóri Kjörís, tilkomnar vegna nýrrar vélasamstæðu sem Kjörís festi nýlega kaup á. Nýja vélasamstæðan muni auka afköst verulega hjá fyrirtækinu en Elías Þór lofar að uppskriftin haldist þó óbreytt eins og hún hefur verið í 40 ár enda eigi Hlunkurinn sér vissan stað í frystikistum landsmanna. „Við vorum mjög hræddir við að fara í þessar breytingar þar sem við vitum að viðskiptavinir okkar eru mjög vanafastir og því var allt gert til að halda vörum fyrirtækisins eins upprunalegum í útliti og kostur var. Hlunkurinn verður áfram sami gamli hlunkurinn þó hann hafi lagt örlítið af og mun ekki valda neinum vonbrigðum. Við viljum meina að þessi breyting sé í takt við tíðarandann því eigum við ekki að segja að landsmenn séu flestir í mun betra formi sjálfir í dag en fyrir 40 árum síðan,“ segir Elías Þór. Breytingar á pakkningum í pinnalínu Fleiri breytingar eru nú sjáanlegar á pinnalínu Kjörís í kjölfar kaupa á nýjum vélum og hafa umbúðirnar meðal annars verið endurhannaðar. „Flaugarnar okkar breytast reyndar ekkert í útliti en það hýrnaði verulega yfir dýrunum sem taka fagnandi við pinnum úr nýjum vélum í nýjum umbúðum. Nýja pökkunarvélin hefur aðeins 8 fingur og ræður því bara við 8 pinna í pakkningu í stað 10 áður, en þá fer bara svo mikið betur um alla í boxinu,“ segir Elías Þór.
Mest lesið Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð Neytendur Vonar að Icelandair sjái sóma sinn í að bæta fólki tjónið Neytendur Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Atvinnulíf Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Viðskipti innlent Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Viðskipti innlent Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Viðskipti innlent „Óumflýjanlegt“ kílómetragjald kynnt í vikunni Neytendur Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Viðskipti innlent Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð Greiðsluáskorun Rafbílaeigendur hljóta að hafa stáltaugar Bóndi í Borgarfirði keyrði Skoda-bíl yfir milljón kílómetra Góð kjör á afmælissýningu Toyota Sjá meira