Lífið

Elsti karl­maður heims látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Juan Vicente Perez Mora starfaði áður í landbúnaði og sem lögreglumaður.
Juan Vicente Perez Mora starfaði áður í landbúnaði og sem lögreglumaður. Nicolas Maduro/X

Venesúelamaðurinn Juan Vicente Perez Mora er látinn, 114 ára að aldri. Hann var árið 2022 útnefndur elsti karlmaður heims af Heimsmetabók Guinness.

Það var Nicolas Maduro, forseti Venesúela, sem greindi frá andlátinu á X-síðu sinni í gær.

Perez var faðir ellefu barna og átti 41 barnabarn, átján barnabarnabörn og tólf barnabarnabarnabörn.

Perez fæddist í bænum El Cobre í Tachira-héraði 27. maí 1909 og var næstyngstur í tíu barna systkinahópi. Hann hóf snemma störf í landbúnaði þar sem hann vann ræktaði meðal annars sykurreyr og kaffibaunir.

Síðar átti hann eftir að starfa sem lögreglumaður og vann meðal annars að því að vinna úr deilum um jarðir og lóðir.

Hin bandaríska Marya Branyas Morera er sem stendur elsta manneskja heims, en hún er 117 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.