Skotinn í höfuðið fyrir framan tólf ára son sinn Samúel Karl Ólason skrifar 12. apríl 2024 16:13 Mikael Kängan og tólf ára sonur hans voru á leið í sund á miðvikudaginn þegar Mikael var skotinn í höfuðið í undirgöngum. EPA/Claudio Bresciani Sænskur maður var skotinn til bana fyrir framan tólf ára son sinn á miðvikudaginn. Feðgarnir voru þá að ganga í gegnum undirgöng og á leið í sund í bænum Skärholmen, úthverfi Stokkhólms, þegar hinn 39 ára gamli Mikael Kängan var skotinn af ungum mönnum.
Samkvæmt fréttum frá Svíþjóð virðist sem Kängan hafi deilt við ungmennin sem skutu hann svo í höfuðið. Umfangsmikil rannsókn hefur verið sett á laggirnar en enginn hefur verið handtekinn, enn sem komið er. Aftonbladet hefur þó eftir forsvarsmönnum lögreglunnar að lögregluþjónar telji sig hafa nokkuð góða hugmynd um hverja þeir þurfi að finna. Í samtali við Ríkisútvarp Svíþjóðar, SVT, segja íbúar Skärholmen að ástandið fari sífellt versnandi í bænum þar sem ungmenni séu sífellt að ógna íbúum. Mágur Kängans sagði í viðtali í morgun að hann hefði engan áhuga á að ræða við þá stjórnmálamenn sem hafi reynt að setja sig í samband við fjölskylduna, þar sem þeir gerðu ekki nóg til að berjast gegn glæpagengjum. Þeir ættu frekar að einbeita sér að vinnu sinni, sagði Elias Demir, samkvæmt frétt TV4. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, minntist Kängans í ræðu í dag þar sem hann hét einnig umfangmiklum aðgerðum gegn glæpagengjum í Svíþjóð. Hét hann því að gripið yrði til aðgerða gegn glæpagengjum og að vísa meðlimum gengja sem ekki væru sænskir ríkisborgarar úr landi.
Svíþjóð Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira