Lífið

Fyrstu kaup­endur hafi þessi at­riði í huga

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Páll Pálsson fasteignasali biðlar til fyrstu kaupenda að hugsa vel út í nokkur atriði áður en þeir festa kaup á eign.
Páll Pálsson fasteignasali biðlar til fyrstu kaupenda að hugsa vel út í nokkur atriði áður en þeir festa kaup á eign. Vísir/Vilhelm

„Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2024 eru fyrstu kaupendur um 30.5% þeirra sem kaupa fasteign á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Páll Pálsson fasteignasali en meðalaldur þeirra er um 29 ár. Fasteignirnar sem fyrstu kaupendur fjárfesta í eru um 90 fermetrar og kosta að meðaltali um 65,7 milljónir.

Páll mælir með því að fyrstu kaupendur hafi nokkur atriði í huga þegar þeir skoða og íhuga fyrstu kaup á fasteign.

Kynnið ykkur eignina

Flestir nýta stærsta hluta af sínum tíma að að skoða eignina að innan og þá sérstaklega útlit íbúðarinnar. Mikilvægt er að skoða vel að innan, ganga í kringum eignina og skoða ytra birði þeas átta sig á ástandi glugga, múrverk, þaki og spyrjast fyrir um ástand lagna. Eins mikilvægt að skoða gögnin þeas söluyfirlit, húsfélagsyfirlýsingu og kynna sér fundargerðir.

Fermetraverðið ekki aðalatriði

Flestir fyrstu kaupendur eru 1-3 ár í sinni fyrstu eign og því mikilvægt að átta sig á fermetraverði á því svæði sem er verið að leita á og bera það saman við fermetraverðið á eigninni sem er verið að kaupa eða gera tilboð í. Leggja sig fram við að kaupa á sem lægsta fermetraverði og nota næstu 1-3 ár til að auka verðgildi eignarinnar.

Fallegt innbú segir ekkert til um eignina

Gætið þess að láta fallegt innbú og hönnunarmuni leiða huga ykkar frá því sem skiptir máli. Gott er að ímynda sér íbúðina tóma. Flestir innanstokksmunir fara og íbúðin fæst afhent með engum húsgögnum. 

Berið saman kaup og kjör

Mikilvægt er að bera saman kaup og kjör á fjármögnun og hugsa hvað hægt sé að borga mikið á mánuði til að koma í veg fyrir að lánið hækki og eigi féið rýrni með hækkandi láni. Vissulega eru aðstæður fólks misjafnar og þarf að horfa á hvert mál fyrir sig. 

Nýtið séreignasparnaðinn

Mikilvægt er að kynna sér hvernig séreignasparnaðurinn virkar og stýrir honum þannig að hann fari inná höfuðstól lánsins. Mikilvægt er að setja séreignasparnaðinn á höfuðstólinn.

Gerið bráðabirgðagreiðslumat

Sniðugt er að láta gera bráðabirgðagreiðslumat og vera sem mest undirbúin með fjármögnun fyrir tilboðsgerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.