Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Jakob Bjarnar skrifar 9. október 2026 08:02 Friðrik Ómar lýsir erfiðum samskiptum við föður sinn heitinn en hann elskaði bæði Trump og Pútín. vísir/anton brink Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson saknar föður síns þótt samband þeirra hafi verið flókið. Viðbrögðin þegar einkasonurinn kom út úr skápnum 25 ára voru meinfyndin en aðdáun föðurins á Trump og Pútín gat tekið á. Útförin í sumar var mikil tónlistarveisla.
Friðrik Ómar er samkynhneigður og hefur ekki farið leynt með það. Í seinni tíð hið minnsta. „Ég myndi segja að ég hafi komið frekar seint úr skápnum. Ég var orðinn 25 ára gamall.“ Já, þú hefur verið orðinn þetta gamall? „Já, það eru bara örfá ár síðan,“ segir Friðrik og hlær. „Pabbi, ég hérna, ég þarf að segja þér svolítið“ Viðtalið sem hér birtist er brot úr Í bóli Bjarnars sem er á dagskrá Bylgjunnar klukkan níu komandi sunnudag en þar er Friðrik Ómar gestur. Bráðfjörugt viðtalið verður aðgengilegt í kjölfarið á helstu hlaðvarpsveitum og á Vísi. Af hverju komstu ekki fyrr úr skápnum? „Það er mjög góð spurning. Þegar ég hugsa til baka þá einhvern veginn böggaði þetta mig ekki mikið. Ég var náttúrulega úti á landi, ég var á Dalvík og Akureyri og það er náttúrulega engin „sena“ þar. Hér getur að líta brot úr brjáðfjörugu viðtali við Friðrik Ómar sem birtist í heild sinni á Bylgjunni klukkan níu, áður en Sprengisandur hefst.vísir/anton brink Ég man að ég kom fyrst suður svona 21 árs og kíkti þá á djammið með Heru Björk vinkonu minni. Þá fyrst fór ég inn á gay-stað og var að átta mig aðeins á þessu. Ég var búinn að segja mömmu þetta en geymdi mér pabba. Hann var sá síðasti í mínum hring sem ég sagði frá.“ Hvers vegna var það? „Ég var einkabarnið og það er svolítið þannig með okkur í hinsegin senunni að það er oft einhver einn sem stoppar mann af, skilurðu? Eða maður notar sem stoppara. En þetta var mjög mögnuð stund. Hann sat inni í stofu heima og var að tefla, hann er mikill skákmaður og ég bara segi: Pabbi, ég hérna, ég þarf að segja þér svolítið. Hann var bara: Já? Þetta er 2006. Og ég segi: Pabbi, ég hérna er samkynhneigður. Hann horfði niður og sagði þá: Jæja, þá er maður útdauður með það sama.“ Varð perluvinur kærasta Friðriks Friðrik segist hafa farið að hlæja. Aðstæður buðu ekki upp á annað. „Þetta varð aldrei neitt atriði fyrir honum sko. Ég eignaðist kærasta og við vorum saman í mörg ár og þeir urðu perluvinir. Þannig að það var aldrei neitt vesen. Þannig að ég var í rauninni kannski búinn að ofhugsa þetta eins og við gerum mörg. Friðrik Ómar segir að samband þeirra feðga hafi verið flókið. Hann náði að sætta sig við það og sjá kómísku hliðarnar á því.vísir/Anton Brink Af hverju gerði ég þetta ekki fyrr? Þú veist. Þess vegna hef ég oft hvatt menn sem hafa haft samband við mig í einkaskilaboðum að stíga skrefið. En þetta er auðvitað svo misjafnt hjá okkur öllum hvenær við finnum það hjá okkur að vera tilbúin.“ Já, heldurðu að hann hafi haft talsvert með það að gera að þú kemur ekki fyrr út úr skápnum en raun ber vitni? „Já, alveg slatta sko.“ Og svo kannski haft eitthvað með það að gera að þú ert úti á landi? „Já, ég myndi alveg segja að það hafi haft sitt að segja.“ Upplifðirðu þig þá sem the only gay in the village? „Nei, varla. Og ég sver það. Ég man ekki einu sinni hvort ég hafi eitthvað verið að hugsa, 18, 19 ára gamall, hvort ég væri eitthvað skotinn í einhverjum strákum. Ég var bara einhvern veginn í einhverju öðru. Skilurðu mig? Þannig að þetta vafðist aldrei neitt svakalega fyrir mér en svo flyt ég suður og þá svona fer boltinn að rúlla.“ Beinskeyttur og hömlulaus í kjaftinum Faðir Friðriks Ómars andaðist 4. júní á þessu ári og blessuð sé minning hans. Friðrik hélt jarðarför á Akureyri sem var mikil tónlistarveisla. „Já. Pabbi fylgdist vel með því sem ég var að gera og með fólkinu sem ég var að vinna með. Hann var alltaf í miklum samskiptum við þau. Var svona bak við, að labba um og svona. Þetta blundaði í honum sjálfum að vera á sviði. Hann var mikið að leika og syngja og spila á trommur í gamla daga.“ Þannig að Friðrik ákvað að kalla til sitt samstarfsfólk. „Já, þetta fólk sem hefur verið með mér hvað mest og þetta var tónlistarveisla. Og mjög létt verk í raun og skemmtilegt. Ég fékk Odd Bjarna Þorkelsson sem jarðsöng en þeir voru gamlir félagar úr sveitinni. Þetta var mjög heimilislegt.“ Friðrik Ómar Hjörleifsson segir að stundum, fyrr á tímum, hafi slegið í brýnu milli þeirra feðga en þeir náðu góðum tíma saman áður en faðir hans andaðist.vísir/anton brink Friðrik Ómar segir spurður að faðir hans hafi verið einstakur. „Já, hann var grjótharður Miðflokksmaður. Út af Simma, Trump og Pútín.“ Já! „Það voru hans menn. Það var stundum erfitt að sitja undir því. Ég skal viðurkenna það. Hann lét í sér heyra á samfélagsmiðlum og hans kvót var alltaf eftir hvern status: „Veljum íslenzkt“ með zetu. Og ég setti það reyndar á kistuna hans. Hún var máluð fagurgræn og þegar henni var snúið í kirkjunni mátti sjá áletrun: „Veljum íslenzkt“. Í hans anda. En hann var mjög svona, já, beinskeyttur og hömlulaus í kjaftinum.“ Hann elskaði Trump og því fékk ekkert breytt Á stundum sló í brýnu milli feðganna. Friðrik Ómar segir að honum hafi ekki alltaf þótt gott að vera í kringum þetta viðmót og þessar skoðanir sem faðir hans var óspar á að tjá. „En síðastliðin tíu ár eða svo höfðum við verið rosalega flottir. Hann fær sem sagt Covid í júlí 2023 og vildi ekki sprauta sig. Ég var brjálaður út í hann en hann veiktist illa og náði sér aldrei upp frá því. Hann fékk svo rosalega í lungun.“ Faðir Friðriks Ómars varð 82 ára, hann var fæddur 14. mars 1944. „Svo sætti ég mig bara einhvern veginn við þetta, þú veist, ég var ekki að fara að breyta pabba. Og það reyndist mikið frelsi fyrir mig. Þannig að þá náðum við ágætis og góðum tíma saman.“ Þú segist hafa horfst í augu við að þú myndir ekki breyta honum en breytti það honum í engu þegar þú komst út úr skápnum? „Tjahh, það er lýsandi þegar við sátum og vorum að horfa á sjónvarpið. Þar var verið að greina frá auknum réttindum hinsegin fólks og þá segir hann: Er ekki komið nóg af réttindum fyrir þennan hóp? Þá sagði ég: En, pabbi, þú veist að ég er hinsegin? „Ja, það er allt annað mál,“ sagði hann þá. Og þannig var þetta með hann, ég myndi aldrei geta lagað afstöðu hans. Ég varð bara að mæta honum og leyfa honum að elska Trump og leyfa honum að elska Pútín.“ Elskaði hann Trump? „Já, dýrkaði hann. Trump var bara aðalmaðurinn, þorir þegar aðrir þegja og gerir og það var kraftur í honum. Þetta reyndi svolítið á en svo fór ég bara að sjá kómíkina í þessu öllu saman. Já, og líka bara svona kannski þessi kynslóð og hans bakgrunnur bauð ekki upp á það að skilja núansana í þessu öllu.“ Friðrik Ómar er sjötti viðmælandinn Í bóli Bjarnars. Fyrri viðtöl má sjá að neðan.
Í bóli Bjarnars Tónlist Miðflokkurinn Donald Trump Vladimír Pútín Hinsegin Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Fleiri fréttir „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Sjá meira