Meistarar Man City halda í við topp­lið Arsenal

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Phil Foden og Kevin De Bruyne. Sá síðarnefndi var allt í öllu hjá Man City í dag.
Phil Foden og Kevin De Bruyne. Sá síðarnefndi var allt í öllu hjá Man City í dag. Getty Images/Michael Regan

Manchester City vann 2-0 útisigur á Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla. Man City er því aðeins stigi á eftir Arsenal og með leik til góða þegar Skytturnar eiga aðeins þrjá leiki eftir af tímabilinu.

Gestirnir frá Manchester vissu að þeir þyrftu á sigri að halda eftir sigur Arsenal á Tottenham Hotspur fyrr í dag. Þá þurfa heimamenn á stigum að halda í baráttu sinni við falldrauginn.

Segja má að Kevin de Bruyne hafi verið lykilmaðurinn á bakvið sigur gestanna en hann lagði upp bæði mörk liðsins í dag. Það fyrra á 32. mínútu þegar varnarmaðurinn Joško Gvardiol skoraði. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks.

Síðara markið skoraði varamaðurinn Erling Braut Håland á 71. mínútu leiksins, lokatölur á City Ground í Nottingham 0-2. Markvörðurinn Ederson fór meiddur af velli í hálfleik en það kom ekki að sök í dag. Það er þó spurning hvort það muni hafa áhrif á titilbaráttu Man City í lokaleikjum tímabilsins.

Eftir leiki dagsins er Man City með 79 stig í 2. sæti að loknum 34 leikjum, stigi á eftir Arsenal sem hefur leikið leik meira. Forest er í 17. sæti með 26 stig, einu stigi frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira