Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. maí 2024 18:48 Arnór Þór fagnar einu marka sinna manna. mynd: bergischer Arnór Þór Gunnarsson fór vel stað í starfi sem aðalþjálfari þýska handboltaliðsins Bergischer. Liðið var svo á góðri leið með að vinna þriðja leikinn í röð í dag en missti tökin í seinni hálfleik og tapaði, 32-30 gegn HSV.
Líkurnar á því að liðið haldi sér uppi í efstu deild fara lækkandi, þeir eru þremur stigum frá öruggu sæti og eiga erfiða andstæðinga framundan í lokaleikjunum. Arnór var leikmaður Bergischer frá 2012, hann lagði svo skóna á hilluna í fyrra og tók við starfi aðstoðarþjálfara. Aðalþjálfara liðsins var svo sagt upp á dögunum og Arnór tók við starfinu. Þá hafði Bergischer ekki unnið leik síðan um miðjan desember og alls tapað þrettán leikjum í röð í deild og bikar. Liðið vann mikilvægan sigur í fallbaráttuslag við Balingen í fyrsta leik Arnórs við stjórnvölinn og lagði svo Erlangen í næsta leik. Í dag heimsótti liðið HSV og byrjaði af miklum krafti. Bergischer leiddi með þremur mörkum, 15-18, þegar flautað var til hálfleiks. En heimamenn fundu taktinn seinni hálfleik, jöfnuðu fljótlega og tóku svo fram úr gestunum. Leikurinn var spennandi allt til enda en HSV hafði betur að lokum, 32-30. Bergischer situr áfram í 17. sæti, næstneðsta sæti deildarinnar og þremur stigum frá öruggu sæti þegar þrír leikir eru eftir af deildinni. Bergischer tekur næst á móti Lemgo og á svo eftir að mæta Fusche Berlin og Flensburg, sem sitja í 2. og 3. sæti deildarinnar.
Þýski handboltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira