Lífið

Með á­tján husky hunda á heimilinu og mæla með

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Gunnar Eyfjörð og María hafa algjörlega fundið sig í sleðahundasportinu.
Gunnar Eyfjörð og María hafa algjörlega fundið sig í sleðahundasportinu. Vísir

Í sjötta þætti af þáttunum Hundarnir okkar sem sýndir eru á Vísi alla þriðjudaga er farið í sleðaferð með huskyhundum með eigendum sleðafyrirtækis sem hafa átján husky hunda inni á heimili sínu. 

Þá er farið er yfir þjálfunaraðferð með tæki sem nefnist klikker og Rauði Krossinn kynnir Hundavini sem er heimsóknarverkefni þar sem hundar fara í heimsókn á ýmsa staði til að létta lund íbúa.

Byrjaði með einn husky

Gunnar Eyfjörð Ómarsson eigandi goHusky ræðir á opinskáan hátt hvernig það hefur verið að vinna með husky hundum undanfarin ár. Hann segir það hafa verið tilviljun að fjölskyldan hafi eignast husky hund á sínum tíma.

„Ég sá þessi ísbláu augu hjá drottningunni minni og kolféll,“ segir Gunnar meðal annars. Hann lýsir því hvernig hann hafi hægt og bítandi bætt við hverjum og einum husky hundi við heimilið. Byrjað á einum og svo áður en hann vissi af voru þeir orðnir þrír.

Þó nokkrir eigi tíu eða fleiri husky

María Björk Guðmundsdóttir annar eiganda goHusky segir sportið gríðarlega skemmtilegt. Hún hafi ekki keppt í neinu þar til þá og komist að því að hún hafi verið með gríðarlegt keppnisskap. Hún segir husky hunda fína heimilishunda.

„Ef þú ert með hund heima þá myndi ég mæla með að reyna að leyfa honum að vinna með eðlið sitt, fá þér gott beisli og leyfa honum að draga þig áfram. Það þarf ekkert að vera einhver rosa þjálfun, bara að göngutúrarnir séu þannig að þeir séu að draga.“

María segir töluverðan fjölda á Íslandi eiga tíu eða fleiri husky hunda. Þó séu enn fleiri sem eigi tvo til þrjá og segist María telja að margir séu hræddir við að prófa sportið. Hún væri til í að sjá fleiri prófa að taka þátt.

Hægt er að horfa á fleiri þætti af Hundarnir okkar á sjónvarpsvef Vísis. 


Tengdar fréttir

Fann fíkniefnin strax

Í fimmta þætti af þáttunum Hundarnir okkar, sem sýndir eru á Vísi alla þriðjudaga, er skyggnst inn í starf lögreglunnar þar sem fíkiniefnaleitarhundar eru notaðir, þjálfun þeirra og hæfniskröfur ræddar og sýnt hvernig þeir vinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×