Vopnfirska kjötsúpan stoltið hjá efnahagsráðgjafa ríkistjórnarinnar Rakel Sveinsdóttir skrifar 25. maí 2024 10:01 Orðatiltækið „illu er best aflokið“ á best við þegar Konráð S. Guðjónsson efnahagsráðgjafi ríkistjórnarinnar drífur sig fram úr á virkum dögum, enda segist hann B-týpa að upplagi. Eftir að allir eru græjaðir á heimilinu er það nóg af kaffi sem leggur síðan grunninn að góðum degi. Vísir/Vilhelm B maðurinn Konráð S. Guðjónsson, efnahagsráðgjafi ríkistjórnarinnar, viðurkennir að hann muni seint teljast meistarakokkur. Stoltið í eldhúsinu er samt vopnfirska kjötsúpan sem er innblásin af Jóa stjúpföður hans.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Það fer yfirleitt eftir því hvenær synir mínir tilkynna að það sé kominn dagur, sem er oftast í kringum hálf átta.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég er er B-týpa að upplagi svo „illu er best aflokið“ ræður för. Á virkum dögum er það að koma sonum mínum í leikskólann og um helgar skemmtum við okkur saman yfir hvolpasveitinni, ef betri helmingurinn leyfir mér ekki að sofa lengur. Nóg af kaffi eftir að allir eru græjaðir er svo grunnurinn að góðum degi.“ Rétturinn sem þú ert stoltastur af að kunna að elda? „Ég verð seint talinn meistarakokkur en prófa mig reglulega áfram svo hæfnin þokast í rétta átt. Ég er stoltastur af vopnfiskri kjötsúpunni sem er innblásin af Jóa stjúpföður mínum. Ekki flóknasta eldamennskan, en hefur ekki klikkað frá landnámi. Rjúpa, frá svipuðum slóðum, er í sömu hillu enda án nokkurs vafa besti matur sem ég hef eldað.“ Konráð segist að mestu byggja skipulagið sitt á verkefnalista sem hann berst síðan við að stytta yfir daginn. Það sé frekar einfalt kerfi, en hafi ekki klikkað hingað til.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Þessa dagana er ég að koma mér fyrir og kynnast forsætiráðuneytinu, enda hóf ég störf fyrir fáeinum dögum. Það eru ýmis mikilvæg verkefni í farvatninu eða í skoðun enda eru efnahagsmálin grunnurinn að lífskjörum landsmanna, vægt til orða tekið. Í mínum huga er mikilvægast að allir rói að því að skapa skilyrði til lækkunar vaxta með minnkandi verðbólgu. Einnig verða stjórnmálin ávallt að huga að því hvernig efnahagsmálin líta út eftir 5, 10 eða 50 ár svo það má ekki heldur gleyma sér í hagvísum einstakra mánaða.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Einhvern veginn hefur mér alltaf tekist að halda skipulagi frekar einföldu, nema helst í hópavinnu, þá koma Planner og sambærileg tæki sér vel. Að öðru leyti vinn ég mikið með „to-do“ lista sem ég berst við að stytta. Ef mikið liggur við hef ég skipt þeim upp í brýn verkefni og það sem má bíða. Einfalt, en hefur ekki klikkað hingað til.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég er oft kominn upp í rúm á góðum tíma, jafnvel fyrir klukkan ellefu en oftast aðeins seinna. B-týpan er þar auðveld bráð „doomscrolling“ og sjónvarpsþátta en gott hlaðvarp færir mig á endanum í draumalandið.“
Kaffispjallið Vopnafjörður Tengdar fréttir „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Dr.Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns segir alvarlega andlitsblindu sína oft geta uppskorið mikil hlátursköst og oftar en ekki kemur hún Erlu í alvarleg vandræði. Daginn byrjar Erla með því að knúsa eiginmanninn. 18. maí 2024 10:01 „Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF finnst gaman að elda og elskar ítalska eldhúsið og að vinna með villibráð sem hann veiðir sjálfur. Pétur segir börnin sín betur kunna að meta matseldina hans nú en þegar þau voru yngri. 11. maí 2024 10:00 Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Berglind Óskarsdóttir, fata- og fylgihlutahönnuður hefur verið búsett ásamt þremur börnum sínum í Mílanó á Ítalíu síðastliðin átta ár. Best finnst henni að drekka morgunbollann úti í garði, hlustandi á fuglana synga, lesa fréttir og skrolla á Instagram. 4. maí 2024 10:02 Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Jóhann Gunnar Jóhannsson, forstjóri Securitas, er snúsari. Nema á sumrin, þá vaknar hann fyrr og fer á mótorhjóli í vinnuna. 27. apríl 2024 10:01 Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara. 20. apríl 2024 10:00 Mest lesið Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ Góð ráð til að hvetja starfsfólk til dáða fyrir síðustu spretti ársins Að yfirstíga eitthvað rosalega vandræðalegt atvik Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni Sjá meira
„Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Dr.Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns segir alvarlega andlitsblindu sína oft geta uppskorið mikil hlátursköst og oftar en ekki kemur hún Erlu í alvarleg vandræði. Daginn byrjar Erla með því að knúsa eiginmanninn. 18. maí 2024 10:01
„Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF finnst gaman að elda og elskar ítalska eldhúsið og að vinna með villibráð sem hann veiðir sjálfur. Pétur segir börnin sín betur kunna að meta matseldina hans nú en þegar þau voru yngri. 11. maí 2024 10:00
Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Berglind Óskarsdóttir, fata- og fylgihlutahönnuður hefur verið búsett ásamt þremur börnum sínum í Mílanó á Ítalíu síðastliðin átta ár. Best finnst henni að drekka morgunbollann úti í garði, hlustandi á fuglana synga, lesa fréttir og skrolla á Instagram. 4. maí 2024 10:02
Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Jóhann Gunnar Jóhannsson, forstjóri Securitas, er snúsari. Nema á sumrin, þá vaknar hann fyrr og fer á mótorhjóli í vinnuna. 27. apríl 2024 10:01
Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara. 20. apríl 2024 10:00