Tónlist

Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Það er alltaf líf og fjör, já og frábært veður á Innipúkanum ár hvert.
Það er alltaf líf og fjör, já og frábært veður á Innipúkanum ár hvert. Brynjar Snær

Páll Óskar og Skrattar leiða saman hesta sína og koma í fyrsta sinn fram saman á sviði, sem og í sitthvoru lagi, á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina, 2-4 ágúst. Meðal annara listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, Ex.Girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök.

Tónlistarhátíðin fer fram í miðborg Reykjavíkur í 21. sinn um verslunarmannahelgina eins og síðustu ár. Steinþór Helgi Arnsteinsson skipuleggjandi segir í samtali við Vísi að um verði að ræða stærsti og glæsilegasti Púkinn til þessa. „Alveg extra púkalegur!“ segir Steinþór.

Aðaldagskrá Innipúkans fer að sjálfsögðu fram innandyra eins og hefð er fyrir. Hátíðin fer þriðja árið í röð fram fram í Gamla bíó og Röntgen þar sem boðið verður upp á tvö tónleikasvið ´samt hátíðarstemningu milli staðana í Ingólfsstræti alla helgina.

Margir ástsælustu listamenn þjóðarinnar hafa komið fram á hátíðinni síðustu tuttugu ár og má þar nefna Bríet, Daði Freyr, Emmsjé Gauti, Eyjólfur Kristjánsson, FM Belfast, GDRN, Hjaltalín, Hjálmar, Lay Low, Magga Stína, Megas, Mínus, Mugison, Of Monsters and Men, Ólafur Arnalds, Ómar Ragnarsson, Raggi Bjarna, Sigga Beinteins, Sóley, Svala, Trabant og Þú & ég.

Miðasala fer fram á Tix.is. Hér að neðan ber að líta listamenn sem hafa verið tilkynntir á hátíðinni. Tilkynnt verður um fleiri listamenn, hljómsveitir og plötusnúða á næstu vikum.

Innipúkinn 2024 - Hljómsveitir og listamenn:

Páll Óskar

Bjartar sveiflur

Ex.Girls

Hasar

Hatari

Hipsumhaps

Hekla

Hermigervill

Inspector Spacetime

Kött Grá Pjé & Fonteki Simbol

Lúpína

Skrattar

Una Torfa

Úlfur Úlfur

Volruptus

Vök






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.