Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 20:00 Elín og Zöe segja karakterana byggða á einhverju sem býr innra með þeim. Aðsend Í dag gefur dúettinn Tár út fyrsta tónlistarmyndband sitt við lagið „Isn’t Life a Bitch“. Myndbandinu er leikstýrt af Baldvin Z en Adam Thor Murtomaa sá um tökur og klippingu.
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fundið nýjan takt og nýjan tilgang í nýrri hljómsveit. Í viðtali við Vísi fyrr á árinu sögðust þær búa til tónlist sem er heiðarleg. Í tilkynningu segir að myndbandið sé ferðalag inn í virkilega súrrealískan veruleika. Karakterar myndbandsins séu hver öðrum undarlegri, en meðal þeirra sem koma fram í vídeóinu eru leikkonan Íris Tanja Flygenring og dansarinn Luis Lucas. Klippa: Tár - „Isn’t Life a Bitch“ „Karakterarnir eru ef til vill birtingarmynd einhvers sem býr innra með okkur öllum, sérstaklega þegar lífið bara virðist ekki ætla að ganga upp,“ segir Elín í tilkynningunni. Zöe tekur undir og segir: „Það fjallar um baráttuna við að gera allt sem í þínu valdi stendur til að láta hlutina ganga upp, en klúðra öllu aftur og aftur.“ Breiðskífa væntanleg Breiðskífa er væntanleg frá hljómsveitinni en auk þess munu þær taka upp EP-plötu í janúar 2027 með óútgefnu efni í hinu Real World Studios, hljóðveri Peters Gabriel, með Grammy-verðlaunahafanum Katie May sem upptökustjóra og hljóðmanni. Hljómsveitin kemur fram í Fríkirkjunni í Reykjavík á Iceland Airwaves í ár, 5. nóvember kl. 21:50. Fyrir tónleikana hafa Elín og Zoe sett saman sex manna hljómsveit.
Tónlist Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hvað veistu um… pitsur? Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Sjá meira