Lífið samstarf

Pula í Króatíu er para­dís heim að sækja

Aventura
Pula í Króatía er nýr og spennandi kostur fyrir Íslendinga.
Pula í Króatía er nýr og spennandi kostur fyrir Íslendinga.

Nýjasti áfangastaður Íslendinga er paradísin Pula í Króatíu. Aventura mun bjóða upp á beint flug þangað í sumar.

Pula í Króatíu sameinar það besta í fríinu,“ segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri Aventura. „Þar má nefna einstaka náttúrufegurð Adríahafsins og þúsunda ára gamla menningu sem er alls staðar sýnileg í mannlífi, byggingum og matargerð.“

Króatía er mjög spennandi kostur fyrir ferðamenn og hefur landið notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár að sögn Andra. „Enda er svo margt sem er heillandi við land og þjóð, til dæmis að upplifa þessa fallegu náttúru og endalausa möguleika í fríinu. Hér er ótrúlegt úrval af spennandi hlutum til að njóta í fríinu, hvort sem þú vilt sigla til Feneyja á Ítalíu, heimsækja þjóðgarða, kíkja í hringleikahús frá dögum Rómverja, sigla til Hvar sem er ein fallegasta eyjan í Adríahafinu, rölta um aldagamlar borgir eða fara í spennandi matar- og vínsmökkun en maturinn hér er víðfrægur. Farþegum Aventura býðst auk þess gott úrval af spennandi skoðunarferðum.“

Boðið er upp á úrval frábærra gististaða við allra hæfi, með frábærri aðstöðu, stórum görðum, sundlaugum, rennibrautagörðum, tennisvöllum og ýmis konar íþróttaaðstöðu. Einnig er hægt að velja lúxus hótel við ströndina ef viðskiptavinir óska eftir því.

„Í Króatíu er mikið lagt upp úr íþróttaiðkun og allskonar tómstundaiðkun. Þar gefast því ótal tækifæri til að fara í styttri og lengri hjólaferðir, skreppa í siglingu, prófa köfun eða skella sér í báts- og kajakferðir.“

Flogið er í beinu leiguflugi alla miðvikudaga frá 29. maí - 27. júní með flugfélaginu Play. Íslenskir fararstjórar í Króatíu í sumar eru þau Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir sem taka vel á móti sólþyrstum Íslendingum og verða þeim innanhandar allan tímann í fríinu.

Fyrsta flugið fór þann 29. maí og var það full vél. Nú eru 180 farþegar Aventura að njóta lífsins í Pula og Porec. Aventura er nú að bjóða síðustu sætin þann 12. júní og síðasta flugið er þann 19. júní.

Kynntu þér málið á vef Aventura.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×