„Tryggingastærðfræðingar eru fámennur hópur með mikið áhrifavald“
Sú óvissa sem er uppi um heimildir lífeyrissjóða til að ráðast í tilfærslur á lífeyrisréttindum sjóðsfélaga með hliðsjón af hækkandi lífaldri er „óþolandi,“ að sögn formanns Landssamtaka lífeyrissjóða, og er afleiðing þess að tryggingarstærðfræðingar, sem hafa „mikið áhrifavald,“ gátu ekki komið sér saman um útfærslu á breytingunum. Hann segir lausn varðandi málefni ÍL-sjóðs ekki vera sjáanlega á næstunni þótt „þreifingar“ hafi verið í gangi við ríkið um mögulegt samkomulag.
Tengdar fréttir
Tuttugu lífeyrissjóðir fordæma áform Bjarna varðandi ÍL-sjóð
Tuttugu lífeyrissjóðir hafa tekið sig saman og sent frá sér tilkynningu þar sem áform Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um lagasetningu er varðar slit og uppgjör á ÍL-sjóði eru fordæmt fortakslaust.
Gildi og LIVE vísa því á bug að verðmæti hafi verið flutt milli kynslóða
Framkvæmdastjórar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) og Gildis lífeyrissjóðs, ásamt tryggingastærðfræðingi hjá Talnakönnun, vísa því á bug að breytingar sem voru gerðar á áunnum lífeyrisréttindum feli í sér að brot á eignarrétti yngri sjóðfélaga. Þvert á móti stuðluðu breytingarnar að „jafnræði milli sjóðfélaga“ og komu í veg fyrir „stórfelldan og óréttlátan tilflutning verðmæta“ frá eldri sjóðfélögum og lífeyrisþegum til þeirra sem yngri eru.
Stórfelldri tilfærslu hjá LV og Gildi verður „án efa vísað til dómstóla“
Bjarni Guðmundsson, sjálfstætt starfandi tryggingastærðfræðingur sem veitir fjölda lífeyrissjóða ráðgjöf, segir að ákvarðanir Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LV) og Gildis lífeyrissjóðs um að breyta áunnum réttindum mismikið eftir aldurshópum feli sannarlega í sér „stórfelldan tilflutning verðmæta“ frá ungu kynslóðinni til hinnar eldri. Framkvæmdastjórar sjóðanna hafa vísað þessari túlkun á bug.