Golf

Åberg með eins höggs for­skot

Siggeir Ævarsson skrifar
Ludvig Åberg lék á 69 höggum í gær og leiðir mótið á fimm höggum undir pari
Ludvig Åberg lék á 69 höggum í gær og leiðir mótið á fimm höggum undir pari vísir/Getty

Hinn sænski Ludvig Åberg leiðir US Open mótið þegar tveimur umferðum er lokið. Hann lék hring gærdagsins á 69 höggum líkt og heimamaðurinn Bryson DeChambeau en er alls á 135 höggum, höggi minna en næstu þrír kylfingar.

Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 24 ára Åberg tekur þátt í mótinu en hann veit vel að mótið er ekki auðvelt:

„US Open mótið á að vera erfitt. Það á að vera snúið og það á að láta þig reyna á allar hliðar leiksins og mér líður eins og það sé að gerast. En hlutirnir hafa fallið með mér í byrjun og ég vona að ég nái að halda áfram á sömu braut.“

Mótið er líkt og svo oft áður stútfullt af stjörnum sem hafa augastað á að landa sigri og er staðan þétt á toppnum eftir fyrstu tvo hringi. Scottie Scheffler, sem er efstur á heimslistanum um þessar mundir, rétt komst í gegnum niðurskurðinn og er í 57. sæti á 145 höggum alls.

Augu margra eru á Tiger Woods eins og oft áður. Hann lauk keppni í gær, spilaði á 73 höggum sem dugði honum ekki til að komast í gegnum niðurskurðinn.

Ótrúlegasta högg gærdagsins átti Francesco Molinari, sem þurfti að fara holu í höggi til að komast í gegnum niðurskurðinn á sinni síðustu holu og gerði sér lítið fyrir og sökkti tæplega 180 metra höggi á par þrír holu beinustu leið ofan í.

Bein útsending frá mótinu heldur áfram í dag á Vodafone Sport og hefst útsending kl. 14:00




Fleiri fréttir

Sjá meira


×