Veður

Yfir tuttugu gráður með mígandi rigningu næstu helgi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Á Húsavík verður líklega mjög gott veður næsta sunnudag.
Á Húsavík verður líklega mjög gott veður næsta sunnudag. Vísir/Vilhelm

Eflaust eru margir farnir að huga að veðrinu næstu helgi fyrir útilegur og önnur ferðalög. Á vef Veðurstofunnar segir að á laugardag verði hlýjast á Suðausturlandi og að hiti gæti þar náð tuttugu stigum. Á sunnudag verður svo hlýjast á Norðausturlandi og gæti hitinn náð 24 stigum.

Trausti Jónsson veðurfræðingur fjallar um spána á bloggi sínu Hungurdiskum og vísar í veðurlíkan Evrópureiknimiðstöðvarinnar. Hann hafði um helgina spáð miklum hlýindum í innsveitum um land allt, eða allt að 25 stigum, en í gær hafði líkanið uppfært reikningana og er þá hlýindum spáð á sunnudag en samkvæmt nýju reikningunum fylgir þeim „mígandi rigning“ á Suðurlandi. Á Norðaustur- og Austurlandi verði mjög hlýtt, en aðeins í skamma stund.

„Þetta eru fjórðungarnir sem eru líklegastir til að vera heitastir þessa tvo daga,“ segir Teitur Arason veðurfræðingur á Veðurstofunni.

Í spá Veðurstofunnar má sjá að á laugardag á að vera um hádegi hlýjast við Kirkjubæjarklaustur þar sem er spáð sól og 17 stiga hita. Í Árnesi verða þá um fimmtán gráður og á Akureyri um 12 gráður á sama tíma og um níu á höfuðborgarsvæðinu. Síðdegis á laugardag verður hitastigið komið upp í tuttugu gráður á Kirkjubæjarklaustri, sautján í Árnesi, ellefu á höfuðborgarsvæðinu og um fjórtán á Akureyri.

Mjög hlýtt og rakt loft á leið til landsins

Á sunnudeginum verði blautt þegar það kemur mjög hlýtt og rakt loft yfir landið.

„Það hangir þurrt í norðausturfjórðungnum,“ segir Teitur og að þar verði bæði sól og hlýtt loft. Samkvæmt spá verða þá til dæmis um 18 stig um hádegi á Kirkjubæjarklaustri og 19 við Egilsstaði. Þar verður svo farið að rigna um klukkan 15. Í Árnesi, þar sem verður hlýtt á laugardag, er svo spáð mígandi rigningu á sunnudag um hádegisbil og 13 stiga hita.

Það verður líklega töluverð blíða á Egilsstöðum á sunnudag.Vísir/Vilhelm

Hlýjast verður á landinu á Norðausturlandi á sunnudag. Þá er spáð um 21 stiga hita á Akureyri og Húsavík um hádegisbil og nítján gráðum á Egilsstöðum. Á sama tíma verða um fjórtán gráður á höfuðborgarsvæðinu og mikil rigning.

Síðdegis er svo spáð allt að 24 stiga hita á Akureyri og 22 gráðum á Egilsstöðum. Þá er enn rigning á Kirkjubæjarklaustri og hitastigið aðeins 16 gráður.

Stutt gaman

Á veðurvef Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings, blika.is, er einnig fjallað um þetta veður. Þar segir að hitinn sem sé á leið til landsins sé angi hitabylgju sem nú ríður yfir norðausturhluta Bandaríkjanna. Hann segir að hitinn verði líklega mestur á sunnudag.

„Blika spáir 20 stiga hita en hráspá og óleiðrétt spá frá ECMWF sýnir allt að 27 stiga hita síðdegis á sunnudag á Egilsstaðaflugvelli,“ segir Einar í sinni umfjöllun.

Það verði gott fyrir landann að njóta þess því eftir það muni svalt loft aftur ná yfirhöndinni fyrstu dagana í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×