Færð á vegum

Fréttamynd

Væta með stífri norð­austan­átt

Í dag er spáð norðaustan átta til 15 metrum á sekúndu og víða rigningu. Samkvæmt spá verður hvassast norðvestantil og með suðausturströndinni. Síðdegis á að draga úr vindi og væta af og til í flestum landshlutum. Hiti verður á bilinu sjö til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.

Veður
Fréttamynd

Stíf norðan­átt með rigningu víða um land

Í nótt og í fyrramálið gengur sakvæmt spá í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Einna hvassast verður á norðvestanverðu landinu þar sem spáir norðaustan 10-15 m/s og hviðum yfir 25 m/s við fjöll.

Veður
Fréttamynd

Bjart­viðri suð­vestan­lands en líkur á skúrum

Í dag verður norðaustan kaldi eða stinningskaldi en sums staðar allhvass vindur á norðvestanverðu landinu. Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar verður rigning norðan- og austantil en bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum þar síðdegis. Hiti 6 til 15 stig.

Veður
Fréttamynd

Mögu­leiki á tuttugu stiga hita

Í dag er útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestanlands og nokkuð hlýtt, hiti yfirleitt á bilinu 13 til 19 stig og möguleiki á að 20 stig geti mælst á stöku veðurstöð.

Veður
Fréttamynd

Skúrir víða um land og lægð nálgast austur­strönd

Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land.

Veður
Fréttamynd

Hæg breyti­legt átt en hiti allt að fimm­tán stig

Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt og þremur til tíu metrum á sekúndu. Súld eða dálítil rigning á Suðaustur- og Austurlandi og hiti 3 til 10 stig, en stöku skúrir í öðrum landshlutum með hita að 15 stigum.

Veður
Fréttamynd

Úrkomulítið sunnan­lands en skúrir á Austur­landi

Í dag er spáð vestan og suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Skúrir, en skýjað með köflum á Austurlandi og Austfjörðum. Hægari breytileg átt annað kvöld. Hiti verður líklega á bilinu sjö til 15 stig að deginum, hlýjast austanlands.

Veður
Fréttamynd

Vætu­samt veður fram á mánu­dag

Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 5-13 m/s og rigningu með köflum, einkum sunnantil, en súld austanlands og norðanlands með kvöldinu. Hiti 4 til 15 stig, svalast austanlands.

Innlent
Fréttamynd

Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld

Í dag má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt, líklega þremur til tíu metrum á sekúndu. Svo er spáð þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti á bilinu fjögur til 15 stig, svalast norðaustanlands.

Veður
Fréttamynd

Stöku skúr síð­degis sunnan- og vestan­lands

Í dag má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s og yfirleitt bjart, en þykknar upp með dálítilli rigningu eða súld austantil síðdegis. Á Austfjörðum er útlit fyrir þokuloft af og til. Hiti verður á bilinu 4 til 14 stig, svalast við austurströndina.

Veður
Fréttamynd

Á­fram­haldandi norðan­átt og stöku él

Í dag má búast við norðlægri eða breytilegri átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og stöku él, en bjart að mestu um landið vestanvert. Hiti verður á bilinu tvö til 10 stig að deginum, en í kringum frostmark norðaustanlands.

Veður
Fréttamynd

Gengur í suð­vestan stinnings­kalda með stöku skúrum eða éljum

Í dag á að gengur í suðvestan og vestan átta til 15 metra á sekúndu, það verður hvassast norðvestantil. Stöku skúrir eða él, en þurrt og bjart á austanverðu landinu fram eftir degi. Hiti verður á bilinu þrjú til níu stig yfir daginn. Í kvöld á svo að lægja og kólna.

Veður
Fréttamynd

Súld eða rigning og milt veður

Í dag kemur lægð fyrir vestan land og hæð á Norðursjó beinir til okkar stífri sunnanátt í dag. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að því megi búast við súld eða rigningu og mildu veðri, en að mestu þurrt og hlýtt á Norðaustur- og Austurlandi.

Veður
Fréttamynd

Allhvöss sunnan­átt með rigningu

Í dag er búist við allhvassri sunnanátt með rigningu sunnan- og vestantil. Veðurfræðingur varar við sunnan hvassviðri eða stormi í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu í kvöld og í nótt. Það geti verið varasamt ökutækjum sem taki á sig mikinn vind. 

Veður
Fréttamynd

Oftar en ekki við­vörun í gildi í mars

Gular og appelsínugular viðvaranir voru orðnar daglegt brauð um miðbik marsmánaðar. Í samantekt Veðurstofu Íslands segir að flesta daga mánaðarins hafi einhvers konar veðurviðvaranir verið í gildi einhvers staðar á landinu.

Veður
Fréttamynd

Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi

Þorsteinn Sæmundsson varaþingmaður Miðflokksins var á ferð suður að vestan þar sem hann á aðsetur þegar á vegi hans varð lítið snjóflóð.

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjól­barða

Ökumenn á illa búnum bílum á höfuðborgarsvæðinu mega eiga von á ansi háum sektum. Hætti þeir sér út í umferðina í óveðrinu í dag verða þeir sektaðir tuttugu þúsund krónur á hvern illa búinn hjólbarða.

Innlent