Umræddur tölvupóstur var sendur á Toto Wolff framkvæmdastjóra Formúlu 1 liðs Mercedes sem og aðra hátt setta stjórnendur innan Formúlu 1 og Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA). Hann barst 10.júní. Degi eftir kanadíska kappaksturinn þar sem að George Russell, liðsfélagi Hamilton hjá Mercedes, tók fram úr honum á síðasta hring kappakstursins.
Því var haldið fram að tölvupósturinn sem og önnur textaskilaboð, sem kom frá ónafngreindum aðila og bar nafnið Mögulegur dauðadómur fyrir Lewis, hafi komið frá ósáttum starfsmanni Formúlu 1 liðs Mercedes og var því haldið fram að Mercedes, einkum Toto Wolff, væri að skemma fyrir Hamilton. Það væri hans leið til þess að hefna sín á Bretanum sem hefur ákveðið að halda á önnur mið eftir yfirstandandi tímabil og ganga til liðs við Ferrari.
Sjálfur hefur Wolff þvertekið fyrir ásakanirnar á hendur sér sem fram komu í umræddum tölvupósti. Hann er handviss um að tölvupósturinn hafi ekki verið sendur af einstaklingi innan raða Formúlu 1 liðs Mercedes.
Hann biðlaði til „klikkaðra samsæriskenningasmiða“ sem telja Mercedes vera að vinna gegn Hamilton að „leita sér sálfræðiaðstoðar.“
Málið kom inn á borð lögregluyfirvalda í Northamptonshire þann 12.júní síðastliðinn og hefur rannsókn hennar leitt í ljós að ekkert bendi til þess að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Hins vegar hefur Sky Sports heimildir fyrir því að lögregluyfirvöld hafi beðið Mercedes um að tilkynna um svipað athæfi um leið og á sama tíma greinir miðillinn frá því að liðið hafi ráðið eigin rannsakanda til að fara ofan í kjölinn á málinu.
Hamilton mætti aftur í bíl Mercedes um síðastliðna helgi og komst á verðlaunapall í Spánarkappakstrinum. Wolff nýtti þá aftur tækifærið til að koma á framfæri skýrri afstöðu sinni í málinu.

„Ég ber enga virðingu fyrir þessum samsæriskenningasmiðum. Þeir eru heilalausir. Við viljum bjóða upp á bíl sem að vinnur keppnir og meistaratitla. Þeir sem ná því ekki geta einbeitt sér að annarri íþrótt.
Það er gott að sjá Lewis eiga góða keppnishelgi því upp á síðkastið hefur það oft verið þannig að hlutirnir hafa ekki gengið upp hjá honum. Núna gekk hins vegar allt upp og ég er ánægður með að sjá hann standa aftur á verðlaunapallinum.“
Formúla 1 heldur nú til Austurríkis og um komandi helgi fer fram keppnishelgi á Red Bull Ring brautinni í Spielberg þar í landi. Vodafone Sport rásin er heimili Formúlu 1 á Íslandi.