Lífið

Fimm­tán ó­missandi hlutir í úti­leguna

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lífið á Vísi tók saman lista yfir fimmtán hluti sem er gæti verið sniðugt að hafa meðferði ferðalagið.
Lífið á Vísi tók saman lista yfir fimmtán hluti sem er gæti verið sniðugt að hafa meðferði ferðalagið. Getty

Hvað er dásamlegra en sólríkar sumarnætur í guðs grænni náttúrunni í góðum félagsskap? Að mati margra er það ómissandi þáttur af sumrinu. Þegar kemur að því að pakka niður fyrir ferðalagið er að mörgu að huga fyrir utan þann grunnbúnað sem fylgir útilegunni. 

Lífið á Vísi tók saman lista yfir fimmtán hluti sem gæti verið sniðugt að hafa meðferðis í ferðalagið.

Þráðlaus hátalari

Góð tónlist er ómissandi fyrir útilegustemninguna. Höfum þó í huga að það geta verið fleiri gestir á svæðinu sem eru ekki með sama tónlistarsmekk og við sjálf. Munið eftir því að hlaða hátalarann áður en lagt er af stað.

Getty

Sjúkrakassi 

Hafið sjúkrakassa í bílnum. Ef eitthvað kemur upp á er gott að geta gripið í plástra, grisjur, sótthreinsandi klúta eða panódíl. Það er aldrei að vita í hvaða ævintýrum við lendum við leik í náttúrunni. Oft fylgir sjúkrakassi með nýlegum bílum og er því gott að hafa hann við höndina.

Getty

Hleðslubanki

Það getur verið erfitt að komast í rafmagn á tjaldsvæðinu og er því sniðugt að hafa hleðslubanka fyrir símann og spjaldtölvuna í töskunni. Munið þó að hlaða hann fyrir ferðalagið eða á leiðinni í bílnum.

Getty

Vatnsbrúsi 

Takið með ykkur góðan vatnsbrúsa og munið að drekka nóg af vatni, sérstaklega þegar heitt er í veðri. Aðrir drykkir geta verið meira freistandi á þessum tíma árs en íslenska vatnið er alltaf best.

Getty

Kaffi 

Í hugum margra er hápunktur dagsins að hella sér a upp á góðan kaffibolla. Munið eftir mokkakönnunni eða hraðsuðukatlinum og góðu kaffi.

Getty

Hlýtt teppi 

Það að sitja undir hlýju teppi í útilegustól á tjaldsvæðum landsins í góðum félagsskap er eitthvað annað notalegt.

Getty

Sólarvörn og varasalvi

Munum eftir sólarvörn og varasalva með vörn! Þegar við erum utandyra allan daginn gerum við okkur ekki alltaf grein fyrir því hvað sólin er sterk hér á landi. Berum á okkur þó svo að það sé skýjað.

Getty

Derhúfa og sólgleraugu

Fullkomnir fylgihlutir við útilegudressið og hylja andlitið frá sólinni.

Getty

Blautþurrkur 

Blautþurrkur geta komið að góðum notum á ferðlagi í bílnum eða á tjaldsvæðinu. Hægt er að þrífa litla fingur eftir matartímann eða til að þrífa farðann af fyrir nóttina.

Getty

Bakkelsi og snarl

Skellið í skúffuköku, snúða eða annað bakkelsi fyrir kaffitímann áður en lagt er af stað. Svo er alltaf gott að geta sett smá súkkulaði, osta og vínber á bakka til að gæða sér á um kvöldið.

Getty

Svefngríma og eyrnatappar

Áttu erfitt með að sofa í tjaldi? Hvort sem þú ert að reyna að leggja þig yfir daginn eða ætlar að reyna að sofna þegar það er partý í næsta tjaldi þá eru eyrnatappar og svefngríma eitthvað sem þú ættir alls ekki að sleppa.

Getty

Sundföt og handklæði

Taktu sundföt og handklæði með í ferðalagið. Sundferð með börnin eða rómantísk samvera með ástinni í fallegri náttúrulaug er frábær afþreying.

A woman swimming in a hot spring in Iceland.

Flugnafælur og kláðakrem

Ekki láta lúsmý trufla þig á ferðalaginu og hafðu með þér flugnafælusprey eða annað sem fælir þær frá. Eitt ráð er að setja nokkra dropa af lavanderolíu, lemongrass olíu eða tee trea olíu í vatn og spreyjað í föt eða yfir rúmföt í þeirri von að fæla óværuna frá. Einnig eru til ýmiss konar fælandi sprey í apótekum. 

Sumir eru líklegri til að verða bitnir og er því gott að hafa kláðakrem, kælikrem eða ofnæmistöflur meðferðis.

Getty

Spil og afþreying

Spilastokkur, Kubbur, Yatzy eða annað spil ætti að vera staðalbúnaður í útileguna. Leggjum frá okkur símana, hlustum á góða tónlist og spilum við vini eða fjölskyldu.

Getty

Sandalar 

Það er mjög gott að vera með sandala, td. Crocs, meðferðis í útileguna þegar við nennum ekki að klæða okkur í skó til að fara á klósettið. Einnig þægilegt að henda sér í inniskó eftir að hafa baðað sig í einhverri af náttúrulaugum landsins.

Getty

Síðast en ekki síst, mundu eftir góða skapinu!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.