Innherji

Út­lán til fyrir­tækja tóku sex­tíu milljarða stökk og hafa aldrei mælst meiri

Hörður Ægisson skrifar
Peningastefnunefnd Seðlabankans, sem hefur haldið meginvöxtum óbreyttum í 9,25 prósent á síðustu fimm fundum, horfir meðal annars nokkuð til útlánavaxtar bankanna til fyrirtækja við ákvörðun vaxta enda er hann vísbending um þróttinn í hagkerfinu hverju sinni.
Peningastefnunefnd Seðlabankans, sem hefur haldið meginvöxtum óbreyttum í 9,25 prósent á síðustu fimm fundum, horfir meðal annars nokkuð til útlánavaxtar bankanna til fyrirtækja við ákvörðun vaxta enda er hann vísbending um þróttinn í hagkerfinu hverju sinni.

Ágætis þróttur er í nýjum útlánum bankakerfisins til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir þröng lánþegaskilyrði en í maí námu þau meira en sextíu milljörðum og hafa aldrei mælst meiri í einum mánuði. Vöxturinn er sem fyrr drifinn áfram af ásókn fyrirtækja í verðtryggð lán á tímum hárra vaxta auk þess sem mikil aukning er í lánum í erlendum gjaldmiðlum.


Tengdar fréttir

Hægir enn á hag­vexti og auknar líkur á að nú­verandi raun­vaxta­stig sé „hæfi­legt“

Horfur eru á að hagvöxtur verði umtalsvert minni í ár en Seðlabankinn gerði áður ráð fyrir samhliða því að hægt hefur nokkuð á vexti innlendrar eftirspurnar. Peningastefnunefnd hefur ákveðið halda vöxtum bankans óbreyttum fimmta fundinn í röð, sem er í samræmi við spár allra greinenda og markaðsaðila, og telur núna meiri líkur en áður að aðhaldsstigið dugi til að ná verðbólgunni niður í markmið.

Fyrir­tækin bregðast við háum vöxtum og færa sig yfir í verð­tryggð lán

Þrátt fyrir hækkandi vaxtastig er áfram nokkur þróttur í nýjum útlánum til fyrirtækja en þau er núna nánast alfarið drifin áfram af sókn þeirra í verðtryggð lán. Frá því um mitt árið í fyrra er hlutfall verðtryggðra útlána meira en áttatíu prósent af öllum nýjum lánum bankanna til atvinnulífsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×