Lífið samstarf

Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina

Bylgjulestin
Bylgjulestin brunar um landið í sumar. Um helgina verður hún í beinni frá Humarhátíðinni á Höfn í Hornafirði.
Bylgjulestin brunar um landið í sumar. Um helgina verður hún í beinni frá Humarhátíðinni á Höfn í Hornafirði. Gotti

Bylgjulestin verður á Höfn í Hornafirði um helgina þar sem in árlega Humarhátíð er í fullum gangi.

„Það er virkilega fjölbreytt og spennandi dagskrá á Höfn. DJ Dóra Júlía mun mæta til okkar í spjall og við fáum einnig Pál Óskar í heimsókn í Bylgjulestina. Við heyrum líka í heimafólki á staðnum og í hlustendum svo verða fastir liðir hjá okkur eins og venjulega. Við hlökkum mikið til,” segir Kristín Ruth en hún verður í beinni á laugardaginn ásamt Svala í Bylgjulestinni.

Humarhátíðin hófst á miðvikudaginn og stendur alveg fram á mánudag. Dagskráin er þétt og stútfull af viðburðum fyrir börn og fullorðna.

Á laugardaginn verður mikið um að vera á hátíðarsvæðinu og meðal annars mun Leikópurinn Lotta troða upp, diskótek með Dóru Júlíu fer fram, furðurverur Pilkington mæta á svæðið, kúadellulottó, ungmennaball og stórdansleikur Páls Óskars svo fátt eitt sé nefnt. Þar að auki eru pallapartý um allan bæ á laugardaginn. Þetta er þó aðeins brot af því sem í boði verður á hátíðinni en nánar er hægt að kynna sér dagskrána hér.

Það er alltaf stuð þar sem Bylgjulestin stoppar.Hulda Margrét

Þau sem ætla að leggja leið sína til Hafnar ættu að fylgjast með veðurspánni. Í dag eru gular viðvaranir í gildi vegna hvassviðris á Austfjörðum og Suðausturlandi. Veðrið ætti að ganga niður í fyrramálið og þá er útlit fyrir blíðskaparveður víðast hvar á landinu.

Kíktu við og taktu þátt í fjörinu! Gríptu með þér hollustubita frá MUNA, skoðaðu glæsilega bíla frá bílaumboðinu Öskju, svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og sláðu í gegn um land allt með Golfsambandi Íslands og Bylgjulestinni.

Næstu stopp Bylgjulestarinnar:

29. júní – Höfn í Hornafirði

6. júlí – Akureyri

13. júlí – Selfoss

20. júlí – Hljómskálagarðurinn í Reykjavík

27. júlí - Hafnarfjörður






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.