Lífið

Stjörnulífið: „Þegar dagdrykkja fer úr böndunum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör hjá stjörnum landsins í síðastliðinni viku.
Það var líf og fjör hjá stjörnum landsins í síðastliðinni viku. SAMSETT

Sumarlífið einkennist af miklu fjöri hjá stjörnum landsins og síðastliðin vika var stútfull af bæjarhátíðum, ferðalögum innan sem utanlands, afmælum, dagdrykkju og fleira flippi. 

Sveitastuð

Skvísurnar og ofurkonurnar Nína Dögg, Björk Eiðs, Hildur Hafstein, Birna Hafstein, Helga Thorz, Edda Björg Eyjólfsdóttir og fleiri skellti sér í fjallahjólaferð um helgina. Þær gistu í sögufrægu veiðihúsunum ensku húsunum og nutu lífsins í íslenskri sveitasælu. 

Þá fagnaði tónlistarkonan, leikkonan og stjarnan Selma Björnsdóttir fimmtíu ára afmæli sínu í júní og fékk óvænta afmælisveislu um helgina úti á landi. Hún var alsæl með veisluna umvafin íslenska fánanum. 

Sáttur í eigin hinsegin skinni

Tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Friðrik Ómar fagnaði hinsegin hátíð í Borgarnesi með stæl. Hann bauð heim í teiti og komu ýmsar stjörnur í veisluna, þar á meðal María Björk, Selma Björns, Björgvin Franz, Eyþór Ingi, Jógvan, Margrét Eir, Elísabet Ormslev, Aníta Rós, Helga Möller og svo lengi mætti telja. 

Friðrik Ómar birti hjartnæma færslu á Instagram þar sem hann þakkar innilega fyrir samveruna á hátíðinni og segir mömmu sína meira að segja hafa komið suður til að fagna með þeim. 

„Þetta er áreynslulaust og við njótum þess í botn. Eintóm gleði. En það á því miður ekki við um alla. Þess vegna finnst mér mikilvægt að taka virkan þátt í viðburði eins og þessum, vera sýnilegur og stoltur, sem vonandi getur hjálpað öðrum. Áfram allskonar,“ skrifar Friðrik Ómar á Instagram síðu sinni. 

Brúðkaup og ást

Tónlistarmaðurinn Hreimur fagnaði ástinni um helgina en hann og eiginkona hans Þorbjörg Sif áttu sautján ára brúðkaupsafmæli. 

Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Margrét Júlíana Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Moombix og söngkona, gengu í það heilaga um helgina. Þau fögnuðu deginum með góðum vinum á borð við Mörtu Maríu hjá Smartland og Pál Winkel fangelsismálastjóra. 

Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Erna Hrund fagnaði brúðkaupi vina sinna Stínu og Ragga í myntugrænum kjól og skemmti sér vel. 

Þjálfarinn, sálfræðineminn og ofurskvísan Telma Fanney fagnaði ástinni í brúðkaupi um helgina með unnusta sínum Jökli í Kaleo. 

Afmæli og fjör

Eurovisionfarinn og tónlistarmaðurinn Daði Freyr fagnaði afmæli sínu í gær, sunnudag. Hann fór aftur í tímann í tilefni af því og birti gamlar myndir af sér. 

Vinkonurnar og fjölmiðlakonurnar Viktoría Hermannsdóttir og Þórdís Valsdóttir áttu skemmtilegan dag með vinkonum þar sem þær nutu í dagdrykkju og flippi. Þær og Heiða Hafsteinsdóttir keyptu sér allar eins föt og spókuðu sig um í miðbænum í appelsínugulum buxum. Á Instagram skrifar Viktoría: „Þegar dagdrykkja fer úr böndunum“.

Áhrifavaldurinn og útvarpskonan Gugga, gjarnan þekkt sem Gugga í gúmmíbát, fór út á lífið um helgina. 

Birgitta Líf markaðsstjóri World Class, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna er komin heim frá Spáni og átti kósý dag í miðborginni með syni sínum Birni Boða. 

Þá fagnaði Inga Tinna forstjóri DineOut afmæli sínu um helgina og birti hennar heittelskaði Logi Geirsson einlæga ástarfærslu til hennar á Instagram. Þar skrifar hann meðal annars: 

„Þú hefur haft góð áhrif á mig og allt mitt líf. Gert mig að betri manni og hlakka til að fá prinsessuna okkar í heiminn, þú verður æðisleg mamma. Bestar allt sem þú gerir sem gerir þig sérstaka. Ferð þína leið og þorir að fylgja draumum þínum sem gerir þig einstaka. Síðasta árið hefur verið ógleymanlegt ferðalag.“

Tinna Brá eigandi Hrím fagnaði fertugsafmæli sínu með ástinni sinni, grínistanum Ara Eldjárn, með því að ferðast í kringum Ísland og halda svo almennilegt teiti í bát við Reykjavík. 

Tónlistarkonan Sigga Ózk skellti sér í kremaðan hvítan kjól og pósaði á svölunum á Kjarval.

Rapparinn Emmsjé Gauti birti gamla og góða mynd af sér og tilkynnti nýja plötu næsta föstudag. 

Einkaþjálfarinn og tónlistarmaðurinn Gummi Emil birti myndband á Instagram þar sem hann var ekki að keyra heldur einfaldlega að hlusta á nýja lagið sitt í bíl.

Íslendingar erlendis

Súperstjarnan Laufey heldur tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin áfram og kom meðal annars fram í Ottowa á sunnudagskvöld.

Þá var hún sömuleiðis að vinna til hinna eftirsóttu Ellu Fitzgerald verðlauna. 

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir nýtur lífsins í botn í fríi í Króatíu með ástinni sinni Bensa Bjarna og góðum vinum. Hún rokkaði skærbleikt bikiní á ströndinni. 

Rapparinn Aron Can birti mynd af sér og sinni heittelskuðu Ernu Maríu í Bandaríkjunum í tilefni af afmæli hennar.

Tónlistarkonan Birgitta Haukdal fagnaði brúðkaupi vina sinna erlendis um helgina. 

Þá áttu stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og rapparinn Erpur Eyvindarson epíska helgi á Ítalíu þar sem þeir ferðuðust borga á milli á mótórhjóli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.