Kostnaðaraðhald Heima er til „fyrirmyndar“
![Fasteignafélagið Heimar, sem áður bar nafnið Reginn, á meðal annars verslunarmiðstöðina Smáralind.](https://www.visir.is/i/D6DCBAAB65655FDB57BEC962AB70ECEA70E940F46CD2650BA64A068C43851D06_713x0.jpg)
Kostnaðarstjórnun Heima er til „fyrirmyndar,“ að mati hlutabréfagreinanda sem verðmetur fasteignafélagið mun hærra en markaðsvirði. Tekjuspá félagsins hefur verið hækkuð og er nú miðað við efri mörk væntinga stjórnenda í ár en áður var reiknað með miðspá þeirra.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/7FA0F9D1B41341BD2BAAA0B3CABAA79261D63D52A8CE00ABE88645C70BDA8498_308x200.jpg)
Vaxtalækkanir ekki verðlagðar inn hjá Heimum
Verðlagning fasteignafélaga virðist í engu samræmi við væntingar stjórnmálamanna, verkalýðshreyfingar, aðila vinnumarkaðarins, greiningadeilda og almennings um lækkun vaxta. Það er því aðeins tímaspursmál hvenær fjárfestar vakna til lífsins og hefja kaup á hlutabréfum fasteignafélaga af fullum þunga.