Lífið

Lauf­ey í bana­stuði í Reykja­vík

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Laufey skemmti sér vel í gærkvöldi.
Laufey skemmti sér vel í gærkvöldi. instagram

Tónlistarkonan Laufey Lín er stödd á Íslandi í kærkomnu fríi eftir að hafa verið á löngu tónleikaferðalagi. Laufey hefur komið víða við og látið sjá sig meðal annars í Melabúðinni og skemmtistaðnum Röntgen.

Ljóst er að aðdáendur tónlistarkonunnar mögnuðu sem vann til Grammy verðlauna í vetur fyrir plötu sína Bewitched er ekki bundin við aldur eða kyn. Þannig heyrði fréttastofa af þrettán ára strák sem tók á sprett út í Melabúð á fimmtudagskvöld þegar hann fékk veður af því að Laufey væri að versla.

Eftirminnilegt augnablik fyrir ungan aðdáanda 

Laufey reyndist vera með Lin Wei móður sinni og lét sig ekki muna um að stilla sér upp á mynd með aðdáandanum unga. Eftirminnilegt augnablik fyrir ungan aðdáanda en Laufey hefur náð til unga fólksins á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hún hefur slegið í geng.

Laufey gerði sig prúðbúna áður en hún hélt niður í miðbæ Reykjavíkur.instagram

Svipað var uppi á teningnum í gær þegar Laufey spígsporaði um miðbæ Reykjavíkur og var endurtekið stöðvuð og beðin um myndatöku af fólki á öllum aldri. Laufey sýndi fylgjendum sínum á Instagram frá göngutúr sínum og þar á meðal leikskólanum sem hún gekk í sem barn, Laufásborg.

Jós lofi yfir Laufeyju

Tónlistarkonan skellti sér út á lífið í gærkvöldi og var einn viðkomustaðurinn Röntgen við Hverfisgötu þar sem sjá mátti þekkt andlit á borð við Emmsjé Gauta og Steinda Jr. 

Laufey birti þessa prýðilegu mynd af Þjóðleikhúsinu sem hún tók frá tröppunum við Röntgen.instagram

Þar var líka Eyjólfur Sverrisson fyrrverandi landsliðsfyrirliði og landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Skipti engum toga því Eyjólfur virtist að sögn fulltrúa Vísis á staðnum svo spenntur yfir Laufeyju að hann gat ekki hætt að ausa hana lofi.

Eftirminnilegt kvöld fyrir Eyjólf sem vafalítið skellir Laufeyju á fóninn í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.