Tónlist

Retro Stefson koma aftur saman

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Danssveitin Retro Stefson kemur aftur saman eftir átta ár í Hlíðarenda í desember. Lífið á Vísi ræddi við nokkra meðlimi sveitarinnar.
Danssveitin Retro Stefson kemur aftur saman eftir átta ár í Hlíðarenda í desember. Lífið á Vísi ræddi við nokkra meðlimi sveitarinnar. Magnús Andersen

Hljómsveitin Retro Stefson hefur verið starfrækt frá árinu 2006 en þó ekki komið opinberlega fram sem sveit í átta ár. Nú er það að breytast en fréttamaður hitti á nokkra meðlimi sveitarinnar og fékk að heyra frá risastórri tilkynningu. 

Hér má sjá viðtalið við Gylfa Freeland, Harald Ara, Loga Pedro og Unnstein Manúel: 

„Pressan við að koma saman var bara orðin óbærileg. Ég gat ekki verið að skylmast við fólk lengur,“ segir Unnsteinn Manúel kíminn og bætir við: „Það eru komin átta ár síðan við komum fram á tónleikum og ég held að þetta sé bara góður tími.“

Hljómsveitameðlimirnir eru gríðarlega spenntir að stíga á stokk og samkvæmt Haraldi Ara er bannað fyrir þau að standa kyrr á sviðinu. Tónleikarnir eru þó ekki alveg strax en þeir verða haldnir í N1 höllinni að Hlíðarenda. 

„Tónleikarnir verða 28. desember og við hvetjum fólk til að kaupa sér miða. Miðasalan hefst 16. júlí og það er líka hægt að skrá sig inn á póstlista Retro Stefson. Við hlökkum til að fá ykkur,“ segja strákarnir fullir tilhlökkunar að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.