Lífið

Sumarsmellur sam­kvæmt læknis­ráði

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn og læknirinn Victor Guðmundsson er maður margra hatta.
Tónlistarmaðurinn og læknirinn Victor Guðmundsson er maður margra hatta.

„Ég hef setið lengi á þessu lagi, en ég elska að gera lög sem hafa mikla orku og eru peppandi, sérstaklega inn í sumarið sem er uppáhalds árstíðin mín,“ segir tónlistarmaðurinn og læknirinn Victor Guðmunsson, sem er þekktur undir listamannsnafninu Doctor Victor, um nýja sumarsmellinn Your Light sem kom út í dag. 

Victor segir lagið fjalla um ástina og að vera ástfanginn. Söngurinn er eftir Dylan Matthew tónlistarmanns frá suður Kaliforníu.

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan:

Maður margra hatta

Victor er þúsundþjalasmiður, hann starfar sem læknir á daginn og fer svo og þeytir skífum og vinnur að tónlist utan þess. Hann er hvað þekktastur fyrir lögin Sumargleðin og Galið gott sem hann gaf út með poppkónginum Páli Óskari Hjálmtýssyni í fyrra.

Samhliða starfsframa sinnir hann föðurhlutverkinu en hann eignaðist nýverið tvíburadrengi, þá Mána og Storm, með sambýliskonu sinni, Dagbjörtu Gudjohnsen Guðbrandsdóttur bráðlækni. Fyrir áttu þau soninn Frosta sem er tveggja ára. 

Hvernig blandar maður þessum tveimur lífstílum saman?

„Það er mikilvægt að reyna halda jafnvægi, þótt enginn sé alltaf 100% í jafnvægi. En ég ímynda mér stól með fjóra fætur og við þurfum að sinna hverjum fót - hreyfing, næring, svefn og andleg líðan. Reyna að hreyfa sig daglega, borða hollt heilt yfir og gera eitthvað gott fyrir andlegu hliðina, sem er tónlist í mínu tilfelli. Þannig að útgáfa sumarsmells er samkvæmt eigin læknisráði,“ segir Victor. 

„Svefninn hefur aðeins verið tæpur undanfarið út af litlu meisturunum, en þetta er allt að koma.“

Hvað er framundan hjá þér í sumar?

„Ég er að spila á Kótilettunni á Selfossi á morgun laugardag með FM95 BLÖ drengjunum og svo tökum við DJ Muscleboy alvöru veislu sett eftir það. Svo er það Þjóðhátíð þar sem ég verð alveg á fullu bæði á stóra sviðinu og sé um Tuborg Tjaldið í ár sem er orðið ennþá stærra en áður. Mjög spenntur fyrir því og mæli með að allir skelli sér í ár þar sem það er 150 ára afmæli Þjóðhátíðar.“


Tengdar fréttir

Tvöföld vandræði fyrir Doctor Victor

Victor Guðmunds­son, lækn­ir og tón­list­armaður, og Dagbjört Gudjohnsen Guðbrandsdóttir bráðalæknir eignuðust tvíburadrengi. Parið greindi frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

„Doctor Victor kveikti í kofanum“

Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson hélt sína fyrstu tónleika, Í fyrsta skipti, fyrir fullu húsi í Iðnó á föstudagskvöldið. Viðtökurnar fóru fram úr hans björtustu vonum og komust færri að en vildu.

Tvíburarnir komnir með nafn

Victor Guðmunds­son, lækn­ir og tón­list­armaður, og Dagbjört Gudjohnsen Guðbrandsdóttir bráðalæknir hafa nefnt tvíburasyni sína. Drengirnir heita Máni og Stormur. Victor  greindi frá gleðitíðindunum í færslu á samfélagsmiðlum í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.