Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum Smári Jökull Jónsson skrifar 13. júlí 2024 19:15 Eva Elíasdóttir skýtur að körfunni. Heimasíða FIBA Íslenska U-20 ára landslið kvenna í körfuknattleik mátti sætta sig við tap gegn Belgum í undanúrslitum B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik í dag.
Leikurinn í dag fór fram í skugga mikilla veikinda sem herja á leikmenn á mótinu í Búlgaríu. Svæsin mataraeitrun kom upp og hafa tugir leikmanna þurft að fá læknisaðstoð og íslenska liðið hefur ekki verið undanskilið. Alls voru fjórir leikmenn fjarverandi hjá Íslandi í dag og aðeins átta leikmenn skráðir á leikskýrslu. Belgíska liðið hefur verið heppnara hvað veikindin varðar og voru með ellefu leikmenn skráða á leikskýrslu. Leikurinn í dag var jafn í upphafi en Belgar þó skrefinu á undan. Staðan var 16-11 eftir fyrsta leikhlutann en íslenska liðið átti góðan kafla í öðrum leikhluta og náði að jafna metin og komast yfir í stöðunni 22-21. Belgar luku þó fyrri hálfleik betur og leiddu 28-24 að honum loknum. Í upphafi síðari hálfleiks gengu Belgar hins vegar frá leiknum. Þær hófu þriðja leikhlutann á 20-0 áhlaupi og munurinn kominn í tuttugu og fjögur stig. Fagnað á íslenska bekknum.Heimasíða FIBA Íslenska liðið náði aldrei að koma til baka eftir þetta. Belgíska liðið sigldi sigrinum örugglega í höfn og vann að lokum 87-51 sigur. Með sigrinum tryggði Belgía sér sæti í A-deild Evrópukeppninnar en Ísland á leik gegn Tékkum um 3. sætið á morgun klukkan 14:30 að íslenskum tíma. Eva Elíasdóttir var stigahæst í íslenska liðinu í dag með 11 stig og Anna Lára Vignisdóttir skoraði 10.
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira