Körfubolti

„Mikil fram­för en því miður ekki nóg“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson sá mun til hins betra hjá leikmönnum sínum. 
Jóhann Þór Ólafsson sá mun til hins betra hjá leikmönnum sínum.  Guðmundur/Vísir

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, merkti töluverð batamerki á liði sínu frá tapinu gegn KR í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Val í kvöld. Svekkjandi sé samt sem áður að það dugi ekki til sigurs. 

„Við vorum mun betri í þessum leik en á móti KR sem er vissulega gott. Það er aftur á móti afar svekkjandi að að hafi ekki dugað til þess að sækja sigur. Við vorum komnir í góða stöðu en náðum ekki að fylgja því eftir og ýta þessu yfir línuna,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, að leik loknum.

„Það voru möguleikar á því að koma okkur 20 stigum yfir í þriððja leikhluta. Þar klúðrum við tveimur opnum layupum og í kjölfarið hefst endurkoman hjá þeim. Eftir það förum við að elta leikinn og sætta okkur við þokkaleg þriggja stiga skot,“ sagði Jóhann Þór.

„Að þessu sinni rötuðu skotin ekki rétta leið og við fundum ekki leiðir til þess að koma okkur inn í leikinn með öðrum hætti. Við tökum með okkur fullt af jákvæðum hlutum og liðið er klárlega á réttri leið,“ sagði Jóhann borubrattur.

„Ég merkti klárlega bragarbót á liðsandanum frá tapinu gegn KR og það var allt annað að sjá viðbrögð leikmanna við mótlæti. Við fáum DeAndre Kane inn í leikmannahópinn um heldina og það styrkir liðið að sjálfsögðu umtalsvert. Við lítum björtum augum á næstu verkefni,“ sagði hann um það sem koma skal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×