Þá má einnig búast við talsverðri eða mikilli rigningu á Austfjörðum, vestanlands byrjar hins vegar ekki að rigna fyrr en í kvöld. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings.
Á morgun hreyfist lægðin norður yfir land og í kjölfarið snýst í vestlæga átt, yfirleitt á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu. Því fylgir dálítil væta víða um land, þó síst norðaustantil. Hiti verður líklega á bilinu 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
Greiðfært er annars um landið allt en gott að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar og veðri á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Breytileg átt 5-13 m/s, skýjað og dálítil væta með köflum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á miðvikudag:
Suðaustan og austan 5-13 og rigning, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag:
Breytileg átt og rigning með köflum vestantil, en skúrir um landið austanvert. Hiti 8 til 15 stig.
Á föstudag og laugardag:
Norðlæg átt og súld eða rigning norðanlands, en úrkomulítið syðra. Hiti 7 til 15 stig, mildast syðst.
Á sunnudag:
Norðanátt og dálítil væta, en þurrt á Suður- og Vesturlandi.