Lífið

Ást­fangin í eitt ár

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hildur Sif og Páll Orri eru án efa eitt glæsilegsta par landsins.
Hildur Sif og Páll Orri eru án efa eitt glæsilegsta par landsins.

Hildur Sif Hauksdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, og Páll Orri Pálsson lögfræðingur fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu í gær. Parið opinberaði samband sitt í febrúar á þessu ári og virðist ástin blómstra.

Í tilefni tímamótanna birti Hildur Sif fallega mynd af þeim saman frá því í sumar þegar þau voru stödd í rómantísku fríi í Cannes í Frakklandi.  

Sex ára aldursmunur er á þeim Páli og Hildi, hann er fæddur árið 1999 og hún 1993.

Hildur Sif er sálfræðingur að mennt og starfar sem sérfræðingur hjá SaltPay. Auk þess hefur hún getið sér gott orð á samfélagsmiðlum og mætti flokkast sem áhrifavaldur. Þá er hún eins og áður segir innmúruð í fyrrnefndan LXS-vinahóp sem gerði garðinn frægann með samnefndri raunveruleikaseríu á Stöð 2.

Páll Orri nam lög við Háskólann í Reykjavík og stundar nú nám í verðbréfamiðlun við sama skóla. Verðbréfin hefur hann lagt fyrir sig hjá Íslandsbanka. Páll Orri hefur verið virkur í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins en laut í lægra haldi í formannskosningu Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, í apríl í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.