Lífið

„Enn hafa eng­ir leynd­ir gall­ar látið á sér kræla“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sóli og Viktoría fögnuðu bómullarbrúðkaupi í gær.
Sóli og Viktoría fögnuðu bómullarbrúðkaupi í gær. Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Grínistinn Sól­mund­ur Hólm og eiginkona hans, Vikt­oría Her­manns­dótt­ir fjöl­miðlakona, fögnuðu tveggja ára brúðkaup­saf­mæli sínu í gær. Hjónin voru gefin saman í Dómkirkjunni í Reykjavík þann 10. september 2022.

„Í dag hef ég verið gift­ur þess­ari feg­urðar­dís í tvö ár og enn hafa eng­ir leynd­ir gall­ar látið á sér kræla. Hepp­inn þessi Hólm­ari,“ skrifaði Sóli og deildi mynd af hjónunum frá brúðkaupsdeginum.

Hjón­in byrjuðu saman árið 2016 og trú­lofuðu sig í Par­ís, borg ástarinnar, árið 2018.

Saman eiga þau tvö börn og fyrir átti Viktoría dóttur og Sóli tvo drengi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.