Verkefnið ber yfirskriftina Hópar landsins láta Ljósið skína, en það sýnir hvernig endurhæfingin og stuðningurinn í Ljósinu hefur margföldunaráhrif inn í margvíslega hópa sem þau sem greinast með krabbamein tilheyra. Að þessu tilefni hittust hópar af öllum stærðum og gerðum, sem með einu eða öðru móti tengjast Ljósinu og fögnuðu saman.
Björk Guðmundsdóttir leikkona hélt utan um gleðina, GDRN og Magnús Jóhann frumfluttu gamla perlu í nýrri útgáfu, boðið var upp á falleg erindi, dásamlegar veitingar og frú Eliza Reid ræddi um mikilvægi þess að hópast í kringum Ljósið.
Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á Ljósavinasíðunni.
Ljósmyndari Vísis var á svæðinu og fangaði skemmtileg augnablik frá kvöldinu.



















