Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Þjóðleikhúsið 17. september 2024 08:31 Glænýr íslenskur gamanleikur, sem ber nafnið Eltum veðrið, verður frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins 4. október. Verkið er skrifað af leikurunum sjálfum. Eltum veðrið er heitið á glænýjum íslenskum gamanleik sem verður sýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins þann 4. október næstkomandi. Eltum veðrið er gamanleikur með söngvum, sem er skrifaður af leikhópnum en hann samanstendur af Eygló Hilmarsdóttur, Guðjóni Davíð Karlssyni, Hallgrími Ólafssyni, Hildi Völu Baldursdóttur, Hilmari Guðjónssyni, Ilmi Kristjánsdóttur, Sigurði Sigurjónssyni og Þresti Leó Gunnarssyni. Auk þeirra lögðu Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sitt af mörkum til þróunar leikverksins framan af. Kjartan Darri Kristjánsson leikari, hefur nú sett upp leikstjóragleraugun og aðstoðar hópinn við að fínpússa verkið. Útilegan þar sem allt fer í steik Skrautlegur vinahópur heldur í sína árlegu útilegu þar sem allt þarf að vera á sínum stað – rétta stæðið fyrir hjólhýsin, moðsteikta holulambið, sándboxið og allt hitt. En nú er samt ekkert eins og það var, því það vantar eina í hópinn. Hver og einn er með sínar hugmyndir um það hvernig eigi að bregðast við nýrri stöðu og hin árlega samkoma vinahópsins tekur óvænta og stórvarasama stefnu. Veit Hjálmar um öskuna? Nær Guðrún að loka stóra málinu? Mun viðhafnarnámið nýtast Andra á toppnum? Þarf að fela vínið fyrir Rögnu? Og er David Clark allur þar sem hann er séður? Tilurð sýningarinnar Eltum veðrið er sannkölluð samsköpunarsýning. Mörg úr leikhópnum tóku þátt í sýningunni Hvað sem þið viljið (As you like it) sem sýnd var í Kassanum fyrir tveimur árum eða svo. Hópurinn skemmti sér konunglega við æfingar og upp úr því kviknaði sú hugmynd að leita að nýlegum gamanleik til að spreyta sig á. Eftir allnokkra leit og grúsk varð niðurstaðan sú að skrifa nýtt verk. Fljótlega kom hópurinn sér saman um að byggja verkið í kringum útilegur Íslendinga og þetta séríslenska fyrirbæri að elta veðrið. Kallað var eftir sögum frá almenningi og þær létu ekki á sér standa. Fjöldinn allur af fólki sendi inn skemmtilega sögur frá kostulegum uppákomum og sumar þeirra hafa ratað inn í sýninguna. Mynd/Hanna Liv Atladóttir. Tónlistin skipar stóran sess Tónlist verksins er eftir Sváfni Sigurðarson auk þess sem Hallgrímur Ólafsson leikari á eitt lag með Sváfni. Hallgrímur og Sváfnir hafa unnið saman að því að skrifa texta ásamt leikurum úr leikhópnum. Nú þegar hafa tvö lög úr sýningunni þegar verið gefin út og hægt er að nálgast þau á Spotify og öðrum tónlistarveitum. Söngur lúsmýsins Margt ljótt hefur verið sagt um lúsmý í gegnum tíðina. Frá því að þessir smávöxnu nýbúar námu hér land hafa þeir verið undir stöðugum ávirðingum. Skítkastið hefur gengið svo langt að fulltrúar tegundarinnar hafa séð sig tilneydda til þess að bera hönd fyrir höfuð sér. Söngur lúsmýsins (pínulítið blóð) er glænýr skordýrarokks-smellur þar sem sjónarmiðum þeirra er haldið á lofti. Lífið er skrítið Lífið er skrítið, er hugljúfur samsöngur sem hentar vel við varðeldinn. Það kom út á Spotify og öðrum tónlistarveitum föstudaginn 5. júlí. Það eru þau Hallgrímur Ólafsson og Eygló Hilmarsdóttir sem leiða í söng en allur leikhópurinn tekur einnig undir í laginu. Listrænir stjórnendur Handrit og leikstjórn: Leikhópurinn Aðstoðarleikstjórn: Kjartan Darri Kristjánsson Tónlist: Sváfnir Sigurðarson Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Myndband: Ásta Jónína Arnardóttir Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson Leikhús Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Fleiri fréttir Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Sjá meira
Listrænir stjórnendur Handrit og leikstjórn: Leikhópurinn Aðstoðarleikstjórn: Kjartan Darri Kristjánsson Tónlist: Sváfnir Sigurðarson Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Myndband: Ásta Jónína Arnardóttir Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson
Leikhús Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Fleiri fréttir Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Sjá meira