Dagný Brynjarsdóttir var í byrjunarliði West Ham en var tekin af velli í hálfleik. Þetta var fyrsti leikur hennar fyrir West Ham í rúmt ár en hún eignaðist sitt annað barn í febrúar.
Geyse, Leah Galton og Grace Clinton skoruðu mörk United í leiknum í dag.
Ingibjörg Sigurðardóttir og Hafrún Rakel Halldórsdóttir voru í byrjunarliði Bröndby sem vann 2-3 sigur á AGF í dönsku úrvalsdeildinni.
Dajan Hashemi skoraði öll mörk Bröndby sem vann þarna sinn annan deildarleik á tímabilinu. Liðið er í 5. sæti með átta stig.