Körfubolti

Shabazz semur við Njarð­vík

Stefán Árni Pálsson skrifar
Shabazz í leik í háskólaboltanum. 
Shabazz í leik í háskólaboltanum.  Mynd/vefsíða háskólans í San Francisco

Njarðvíkingar hafa nú þegar fundið nýjan Bandaríkjamann til að leika með liðinu í Bónusdeild karla í vetur.

Fyrr í dag greindi Vísir frá því að Julius Brown hafi verið leystur undan samningi við félagið. Karfan.is greinir í dag frá því að félagið hafi samið við bakvörðin Khalil Shabazz.

Shabazz lék með Balikesir í Tyrklandi síðasta tímabili en hann var áður í háskóla í San Fransisco. Í tyrknesku deildinni skoraði hann 17 stig og gaf sex stoðsendingar að meðaltali í leik. Bónusdeild karla hefst 3.október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×