Skelfi­leg mis­tök Kellehers og tap hjá Heimi

Heimir Hallgrímsson á hliðarlínunni í Aþenu í kvöld, með sorgarband vegna fráfalls George Baldock, sem lék með gríska landsliðinu og einnig með ÍBV á sínum tíma.
Heimir Hallgrímsson á hliðarlínunni í Aþenu í kvöld, með sorgarband vegna fráfalls George Baldock, sem lék með gríska landsliðinu og einnig með ÍBV á sínum tíma. Getty/Stephen McCarthy

Írar unnu sinn fyrsta sigur undir stjórn Heimis Hallgrímssonar þegar þeir lögðu Finna að velli á fimmtudaginn en þeir urðu að sætta sig við 2-0 tap gegn Grikkjum í Aþenu í kvöld, í riðli 2 í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta.

Leikmenn léku með sorgarbönd í kvöld vegna fráfalls George Baldock, fyrrverandi landsliðsmanns Grikklands, og Tasos Bakasetas tileinkaði Baldock fyrra mark leiksins þegar hann kom Grikkjum yfir snemma í seinni hálfleik.

Grikkir voru 1-0 yfir þar til í uppbótartíma þegar markvörðurinn Caoimhin Kelleher gaf boltann óvart beint á Petros Mantalos sem þakkaði fyrir sig og innsiglaði sigur Grikkja.

Þar með hefur Grikkland unnið alla fjóra leiki sína og er efst í riðlinum með tólf stig. England er með níu stig, Írland þrjú og Finnland án stiga, fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira