Lífið

Sunn­eva við­stödd fæðingu sonar Jóhönnu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sunneva virðist hafa verið Jóhönnu innan handar í ýmsum verkefnum í fæðingunni.
Sunneva virðist hafa verið Jóhönnu innan handar í ýmsum verkefnum í fæðingunni.

Sunneva Einarsdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, var viðstödd fæðingu sonar vinkonu sinnar, Jóhönnu Helgu Jensdóttur áhrifavalds, sem kom í heiminn í lok september. Sunneva birti myndskeið af fæðingardeildinni á Instagram.

Í myndskeiðinu má sjá þegar Sunneva farðar vinkonu sína, tekur af henni myndir og hvetur hana áfram í gegnum hríðarnar, þar sem hún liggur í sjúkrarúmi á fæðingardeildinni. Í lokin má sjá þegar drengurinn er kominn í heiminnn og vinkonurnar að dást að honum.

„Ef þú er að fæða barn, erum við að fæða barn,“ skrifar Sunneva við myndskeiðið. 

Drengurinn er annað barn Jóhönnu og kærasta hennar, Geirs Ulrich, en fyrir eiga þau dótturina Tinnu Maríu.

„Litli bróðir er mættur. Fullkominn, stór og sterkur - fæddur á slaginu kl 15:00 þann 20.09. Hlökkum til að kynnast sem fjölskylda næstu daga og vikur,“ skrifa Jóhanna við mynd af parinu á fæðingardeildinni.

Jóhanna og Geir hafa verið par í rúmlega sex ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.