Þá eru í gildi skriðuviðvaranir og viðvaranir um grjóthrun á Suður- og Vesturland og Vestfjörðum fram að helgi.
„Þetta er búið að vera dálítill hvellur. Sérstaklega á Vestfjörðum og Norðvesturlandi. Það á svo eftir að hvessa aðeins á Norðausturlandi áður en þetta gengur niður. Þannig þetta er ekki alveg búið en um og eftir miðnætti ætti þetta að ganga hratt niður. Þetta er lítil og kröpp lægð sem fer hratt hjá og hún er ekki alveg búin,“ segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Hann segir að á morgun og á laugardag verði töluvert skárra veður en aðeins leiðinlegra á sunnudag.
Áminning um að festa eða fjarlægja það sem getur fokið
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að nokkuð vel hafi gengið hjá björgunarsveitum þrátt fyrir þó nokkur útköll. Ekki hafi verið tilkynnt um neitt alvarlegt en eitthvað um fok víða um land.
„Þetta hefur ekki reynt mikið á okkur en það var verið að kalla út núna á Akureyri út af plötum sem voru að fjúka á byggingasvæði,“ segir hann og að kallað hafi verið út í samskonar verkefni á Ísafirði og Bolungarvík í dag.
Þá hafi einnig fokið af svölum á Ísafirði og trampólín á Héraði í morgun.
Jón Þór segir að það sé greinilegt að enn hafi margir átt að fjarlægja hluti úr görðum og af svölum sem geti fokið.
„Það er fínt að líta á þetta sem síðustu viðvörun fyrir veturinn að ganga frá því sem maður vill ekki að fjúki frá sér.“
Á vef Vegagerðarinnar má sjá að greiðfært er um allt land en víða mjög hvasst. Hægt er að fylgjast með nýjustu fréttum af veðri á vef Veðurstofunnar og færð vega á vef Vegagerðarinnar.