Körfubolti

Dwayne Lautier á leið í að­gerð og verður frá í 6-8 vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dwayne Lautier í leik með Njarðvík á síðasta tímabili.
Dwayne Lautier í leik með Njarðvík á síðasta tímabili. vísir/pawel

Körfuboltamaðurinn Dwayne Lautier-Ogunleye verður frá keppni í sex til átta vikur eftir að hafa handarbrotnað í leik gegn ÍR í Bónus-deild karla á dögunum.

Þetta hefur Vísir eftir áreiðanlegum heimildum. Leikurinn gegn ÍR tapaðist, 101-96. Fyrsti sigur Breiðhyltinga á tímabilinu.

Lautier spilaði nánast allan leikinn eða um 36 mínútur. Bretinn meiddist í fyrri hálfleik en var vafinn í hálfleiknum og hélt leik áfram.

Þetta er mikill skellur fyrir Njarðvíkinga en Lautier var fyrr á tímabilinu frá vegna meiðsla á hæl og missti af tveimur leikjum. Hann byrjaði tímabilið með látum og var einn besti leikmaður deildarinnar.

Njarðvík mætir Grindavík í næstu umferð á föstudagskvöldið. Lautier mun fara í aðgerð á hendi á morgun og síðan taka við um tveir mánuðir í endurhæfingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×