Innlent

Söng­elskir nem­endur í Mennta­skólanum að Laugar­vatni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guðmundur Óli Gunnarsson, hljómsveitarstjóri tónleikanna í Skálholti en auk þess er hann stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands. Hér er hann einbeittur á einni æfingunni.
Guðmundur Óli Gunnarsson, hljómsveitarstjóri tónleikanna í Skálholti en auk þess er hann stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands. Hér er hann einbeittur á einni æfingunni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hugur nemenda Menntaskólans að Laugarvatni er ekkert endilega við skólabækurnar þessa dagana því kór skólans er að fara að syngja á þrennum tónleikum í Skálholti með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Meirihluti nemenda er í kórnum.

Það er heilmikil eftirvænting og spenna fyrir tónleikunum í Skálholti um næstu helgi en af þeim 135 nemendum, sem eru í Menntaskólanum að Laugarvatni þá eru um 100 nemendur í kórnum.

Tvennir tónleikar verða haldnir laugardaginn 30. nóvember og er uppselt á þá báða en einhver laus sæti eru enn á tónleikana á föstudagskvöldinu 29. nóvember. Æfingar kórsins og Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands hafa staðið stíft yfir síðustu vikurnar og allt gengið mjög vel.

„Og núna er það ekkert annað en megnið af nemendum Menntaskólans að Laugarvatni því þau eru nánast öll í kórnum þar undir dyggri stjórn Eyrúnar Jónasdóttur. Og við erum að fara að flytja um næstu helgi má segja bara hlaðborð af glæsilegri jólatónlist, bæði sprell og gaman og líka háklassískri og hátíðlegri í bland. Einsöngvarar með okkur verða Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Dísella Lárusdóttir sópransöngkona,” segir Guðmundur Óli Gunnarsson, hljómsveitarstjóri.

Æfingar fyrir tónleikana hafa gengið einstaklega vel.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nemendum finnst mikill heiður að fá að syngja með sinfóníuhljómsveitinni og hvað þá í kirkjunni í Skálholti.

„Þetta er bara rosalega spennandi verkefni og við erum öll bara mjög spennt fyrir þessu, það er svo skemmtilegt að fá að taka þátt í þessu,” segir Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir, formaður nemendafélags Menntaskólans að Laugarvatni.

En á Kolfinna einhverja skýringu á þessum miklu vinsældum kórsins í skólanum?

„Það er bara stemmingin og andinn í kórnum, það eru allir svo góðir vinir og alltaf góð stemming á kóræfingum.”

Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir, formaður nemendafélags Menntaskólans að Laugarvatni, sem hlakkar mikið til jólatónleikanna eins og aðrir nemendur skólans.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×