Tónlist

Auður ein­hleypur og skýtur á yfir­völd vegna Yazans

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tónlitarmaðurinn Auður Lúthersson gaf út lagið, Peningar, peningar, peningar, í dag.
Tónlitarmaðurinn Auður Lúthersson gaf út lagið, Peningar, peningar, peningar, í dag.

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, er einhleypur. Þrátt fyrir að vera einn eftir í kotinu hefur hann haft nóg að gera í tónlistinni. Fyrr í dag gaf hann út lagið Peningar, peningar, peningar þar sem hann skýtur meðal annars föstum skotum að yfirvöldum um mál Yazans Tamimi, fjölfatlaðs drengs frá Palestínu.

Auðunn er búsettur í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem kynni tókust með honum og fyrrverandi kærustu hans Cassöndru. Þau opinberuðu samband sitt í október í fyrra en hafa nú haldið hvort í sína áttina. 

Spurður hvort hann sjái fyrir sér að flytja aftur til Íslands segir Auðunn það ekki vera á döfinni. Hann segist þó sakna þess að fara í gufu og kalda pottinn.

Skýtur föstum skotum frá LA

Textinn í umræddu lagið beitt ádeila á neysluhyggju samtímans auk þess skýtur föstum skotum að yfirhöldum um mál Yazans frá Palestínu í opnunarlínum lagsins:

„Ég kaupi landi fleiri fermetra, set strák í hjólastól á götuna.“

Hljóðfæraleikur, texti, upptökur og hljóðblöndum var í höndum Auðuns í umræddu lag.

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan:

Auðunn lét gamlan draum rætast þegar hann flutti til Los Angeles í byrjun árs 2023 þar sem hann starfar sem tónlistarmaður og hljóðupptökustjóri.

Hann hefur unnið tónlist fyrir listamenn á borð við Social House, Prince Ndour, Adelina, YSA og ChiChi, auk þess sem hann var hluti af beinu streymi Twitch- stjörnunnar Kai Cenat á dögunum. Cenat er með yfir 11, milljón fylgjendur á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.