Söfnunarþáttur UNICEF í beinni útsendingu á þremur stöðvum í einu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. nóvember 2024 14:00 Fulltrúar þriggja sjónvarpsstöðva munu koma að söfnunarþætti UNICEF. Söfnunar- og skemmtiþáttur UNICEF á Íslandi, Búðu til pláss, verður í beinni útsendingu föstudaginn 6. desember kl. 19:40 á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis: Stöð 2, RÚV og Sjónvarpi Símans. Tilefnið er tuttugu ára afmæli UNICEF á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að skemmtiþátturinn Búðu til pláss verði sendur út í beinni útsendingu á stöðvunum þremur í samstarfi við Vodafone og Kviku banka. Sýn, sem á og rekur Stöð 2 og Vodafone, leggur auk þess til höfuðstöðvar sínar undir útsendinguna og símaver Vodafone í þágu málstaðarins. „Búðu til pláss í hjartanu þínu, skráðu þig sem Heimsforeldri UNICEF og eigðu ógleymanlega kvöldstund með fjölskyldunni föstudagskvöldið 6. desember klukkan 19:40. íðastliðin tuttugu ár hafa tugþúsundir Íslendinga átt þátt í heimsmeti í að leggja réttindum og velferð milljóna barna um allan heim lið með því að vera Heimsforeldrar UNICEF. Nú sem aldrei fyrr þurfa börn heimsins á stuðningi þínum að halda enda aldrei fleiri börn búið við hörmungar sem þau eiga enga sök á.“ Skemmtikraftar í Kanarí brugðu á leik á sambærilegu söfnunarkvöldi árið 2022. Stjörnum prýtt skemmtikvöld Fram kemur að stóru sjónvarpsstöðvarnar þrjár taki allar höndum saman og búi allar til pláss í dagskránni sinni svo áhorfendur geti búið til pláss í hjörtum sínum í þágu barna í neyð. Í þættinum verði boðið upp á úrval skemmtiatriða, grín, dans og tónlist þar sem landsþekktir einstaklingar og velunnarar UNICEF leggi sitt að mörkum í þágu málstaðarins. Í þættinum koma meðal annars fram Diljá Pétursdóttir og Björn Stefánsson, dansarar í Ungleikhúsinu og Örn Árnason ásamt Halldóru Geirharðsdóttur, Páli Óskari, Sigríði Thorlacius, Ólafi Darra og Gunnari Hanssyni. Tónlistaratriði kvöldsins verða glæsileg þar sem fram koma meðal annars Pollapönk, Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Una Torfa, Unnsteinn Manúel, Rakel Sigurðardóttir, Högni Egilsson, Elín Hall, Daníel Ágúst og Vitringarnir þrír. Kynnar kvöldsins verða Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og grínstjórar kvöldsins og kynnar í símaveri Vodafone eru Fannar Sveinsson og Sandra Barilli. Félagar í Spaugstofunni brugðu á leik í sambærilegum söfnunarþætti árið 2012. Meginmarkmið kvöldsins verður að fjölga í hópi Heimsforeldra UNICEF, mánaðarlegra styrktaraðila Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og munu sjálfboðaliðar í símavera Vodafone taka á móti símtölum verðandi Heimsforeldra allt kvöldið. Segir í tilkynningu að lögð verði áhersla á von og árangur í fjölkrísuheimi og áhorfendum veitt innsýn í störf og verkefni UNICEF um allan heim. „Sérstök áhersla í þættinum verður á hörmungar barna á Gaza og hvernig þú getur lagt þitt af mörkum til að styðja við börn sem misst hafa allt sitt í stríði sem þau bera enga ábyrgð á. Fyrstu þrír mánuðir af framlögum nýskráðra Heimsforeldra munu þannig renna til neyðarsöfnunar fyrir börn á Gaza.“ Ógleymanleg kvöldstund fyrir alla fjölskylduna „Við lofum ógleymanlegri kvöldstund í krafti þessa öfluga samstarfs, þar sem við munum í senn slá á létta strengi sem og hjartastrengi þjóðarinnar í þágu réttinda barna,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Tuttugu ára samfylgd og stuðningur Heimsforeldra UNICEF á Íslandi hefur skilað sögulegum árangri í þágu barna um allan heim. Samtakamáttur þjóðarinnar sýnir sig í því að okkar litla þjóð á heimsmet í hlutfallslegum fjölda Heimsforeldra innan UNICEF. Við erum ótrúlega þakklát öllum samstarfsaðilum okkar í þessu risavaxna verkefni sem öll hafa lagst á eitt til að búa til pláss fyrir UNICEF og Heimsforeldra. Nú þegar við fáum svona dýrmætt pláss fyrir skilaboð og erindi UNICEF, biðjum við þjóðina að búa til pláss í hjartanu sínu og skrá sig sem Heimsforeldra. Sýnum í verki að við stöndum með voninni, að við stöndum með réttindum og velferð barna um allan heim, því það hefur aldrei verið mikilvægara.“ Búðu til pláss – fyrir betri heim fyrir börn Heimsforeldrar UNICEF eru mikilvægustu styrktaraðilar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Sem Heimsforeldri styður þú ekki við eitt tiltekið barn, heldur börn um allan heim í gegnum stærstu hjálparsamtök í heimi fyrir börn og myndar þannig öryggisnet fyrir öll börn ásamt öðrum Heimsforeldrum. Í fyrra tryggðu Heimsforeldrar UNICEF meðal annars: 40 milljónum barna og ungmenna aðgengi að menntun og 30 milljónum skólagögn til náms. Rúmlega 42 milljónum einstaklinga hreint vatn og hreinlætisþjónustu við neyðaraðstæður. Rúmlega 400 milljónum barna bólusetningu við mænusótt og 130 milljónum við mislingum. Bólusetningar hafa bjargað sex mannslífum á mínútu síðustu 50 árin og eru árangursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir að börn veikist og deyi af völdum sjúkdóma. Rúmlega 430 milljónum barna, barnshafandi kvenna og nýbakaðra mæðra þjónustu til að meðhöndla og fyrirbyggja vannæringu. Og vissir þú að fleiri börn lifa nú af fyrstu fimm ár ævi sinnar en nokkru sinni fyrr og að dánartíðni barna á þessum aldri hefur dregist saman um 51% frá árinu 2000? Þessi árangur er vitnisburður um þann árangur sem UNICEF hefur náð á undanförnum áratugum í þeim verkefnum sínum að auka aðgengi að grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu, bólusetja börn gegn hættulegum sjúkdómum, veita mæðrum og foreldrum nauðsynlegan stuðning og fræðslu, sinna langtímauppbyggingu samfélaga og bregðast við neyðaraðstæðum með mannúðaraðstoð um allan heim. Búðu til pláss í hjartanu þínu – fyrir líf allra barna. Horfðu á söfnunarþátt UNICEF og skráðu þig sem Heimsforeldri í dag. Bíó og sjónvarp Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Sjá meira
Heimsforeldrar UNICEF eru mikilvægustu styrktaraðilar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Sem Heimsforeldri styður þú ekki við eitt tiltekið barn, heldur börn um allan heim í gegnum stærstu hjálparsamtök í heimi fyrir börn og myndar þannig öryggisnet fyrir öll börn ásamt öðrum Heimsforeldrum. Í fyrra tryggðu Heimsforeldrar UNICEF meðal annars: 40 milljónum barna og ungmenna aðgengi að menntun og 30 milljónum skólagögn til náms. Rúmlega 42 milljónum einstaklinga hreint vatn og hreinlætisþjónustu við neyðaraðstæður. Rúmlega 400 milljónum barna bólusetningu við mænusótt og 130 milljónum við mislingum. Bólusetningar hafa bjargað sex mannslífum á mínútu síðustu 50 árin og eru árangursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir að börn veikist og deyi af völdum sjúkdóma. Rúmlega 430 milljónum barna, barnshafandi kvenna og nýbakaðra mæðra þjónustu til að meðhöndla og fyrirbyggja vannæringu. Og vissir þú að fleiri börn lifa nú af fyrstu fimm ár ævi sinnar en nokkru sinni fyrr og að dánartíðni barna á þessum aldri hefur dregist saman um 51% frá árinu 2000? Þessi árangur er vitnisburður um þann árangur sem UNICEF hefur náð á undanförnum áratugum í þeim verkefnum sínum að auka aðgengi að grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu, bólusetja börn gegn hættulegum sjúkdómum, veita mæðrum og foreldrum nauðsynlegan stuðning og fræðslu, sinna langtímauppbyggingu samfélaga og bregðast við neyðaraðstæðum með mannúðaraðstoð um allan heim. Búðu til pláss í hjartanu þínu – fyrir líf allra barna. Horfðu á söfnunarþátt UNICEF og skráðu þig sem Heimsforeldri í dag.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Sjá meira