Innlent

Sam­tökin '78 kæra odd­vita Lýðræðisflokksins

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Bjarndís Helga Tómasdóttir og Eldur S. Kristinsson
Bjarndís Helga Tómasdóttir og Eldur S. Kristinsson Samsett

Samtökin '78 hafa hafa lagt fram kæru gegn Eldi S. Kristinsson, oddvita Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Eldur skrifar um pólitískar ofsóknir í skoðanagrein á Vísi en formaður Samtakanna '78 segir ekki um ofsóknir að ræða heldur viðbrögð við kæru.

„Í gær (fimmtudag 28. nóvember) var hringt í mig frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og ég boðaður í skýrslutöku (sem fór fram í hádeginu í dag) því Samtökin '78 ákváðu þann 11. nóvember síðastliðinn að kæra mig fyrir ummæli allt tilbaka til ársins 2022. M.a. vegna greinar sem ég ritaði í Morgunblaðið 19. nóvember 2022 um öfgafull viðbrögð á Alþingi frá fyrrverandi varaþingmanni VG og fyrrverandi framkvæmdarstjóra Samtakanna '78 við umsögn félagssamtaka sem ég er í forsvari fyrir við lagafrumvarp sem lá þar fyrir,“ skrifar Eldur í skoðanagrein sem birt var á Vísi.

Þá segir hann einnig hafa verið kærður fyrir að velta fyrir sér „hvötum karla sem skilgreina sig sem konur að taka inn lyfið „domperidone“.“

Fullyrti að samtökin væru að tæla börn

Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna '78 staðfestir kæruna í samtali við fréttastofu. Þau hafi lagt hana fram 25. júní síðastliðinn fyrir sjö ummæli sem hann sagði opinberlega á síðustu tveimur árum.

„Ég held að það ætti ekki að koma neinum á óvart að við sitjum ekki undir því aðgerðarlaus þegar að einstaklingar um margra missera skeið haldi uppi lygum um hinsegin fólk og sérstaklega trans fólk sem að hann hefur gert,“ segir Bjarndís.

„Hann fullyrðið í einum ummælum að Samtökin '78 séu að grooma eða tæla börn. Í öðrum ummælum karlar hann trans konur barnaníðinga. Við teljum að slík ummæli séu óverjanleg og vega einfaldlega að öryggi starfsfólki okkar, sjálfboðaliða og alla hinsegin fólks samfélaginu.“

Einbeita sér að öðrum flokkum

Fyrirsögn greinarinnar var „Pólitískar ofsóknir í aðdraganda Alþingiskosninga.“ Bjarndís segir að ekki sé um neinar pólitískar ofsóknar að ræða heldur viðbragð við kæru sem lögð var fram í sumar. 

„Samtökin '78 hafa ekki verið að einbeita sér að flokkum öðrum en þeim sem eiga möguleika á að komast inn á þing,“ segir hún. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×