Opnuðu sjóðheitt hönnunarstúdíó með stæl Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. desember 2024 14:02 Það var líf og fjör á opnun gallerísins Hakk í síðustu viku. Nína Kristín Guðmundsdóttir Menningarlífið iðaði í miðborg Reykjavíkur síðastliðið fimmtudagskvöld þegar splunkunýja hönnunargalleríið Hakk opnaði dyrnar að Óðinsgötu 1. Opnunin var að sögn forsprakka dúnmjúk og nýjasta hönnunartríó landsins Erindrekar frumsýndi þeirra fyrstu línu.
Erindrekar hanna fylgihluti úr æðardúni frá Skálanesi í Seyðisfirði. Í fréttatilkynningu segir: „Hið nýstofnaða Hakk gallerí þróar og heldur sýningar auk viðburða á verkum og verkefnum íslenskra jafnt sem erlendra hönnuða og listamanna. Studio Erindrekar er íslenskt hönnunartríó með aðsetur í Reykjavík og á Seyðisfirði. Stúdíóið er skipað vöruhönnuðunum og æðarbændunum Írisi Indriðadóttur og Signýju Jónsdóttur og fatahönnuðinum og textílsérfræðingnum Sigmundi Páli Freysteinssyni. Þeirra fyrstu vörur á markaði eru húfur og lúffur úr fyrsta flokks vottuðum æðardúni og vatns- og vindheldri, lífrænni, bómull sem eru handgerðar á Íslandi og seldar í takmörkuðu upplagi. Hönnunartríóið leggur áherslu á vistvæna hönnun og fylgir sjálfbærum vinnubrögðum í hverju smáatriði þar sem þau tína æðardúninn, vinna hann, hanna úr hönum vörur, framleiða og selja. Þau notast við leikgleði, notagildi og nýstárlegar leiðir til að nýta efni og auðlindir til fulls og leitast við að skapa tímalausa og ábyrga hönnun. Erindrekar voru nýverið tilnefndir til Hönnunarverðlauna Íslands í flokki verks fyrir rannsókn þeirra og sýningu á fatnaði úr íslenskum æðardún. Þau halda nú áfram vegferð sinni í að skapa vistvænar flíkur úr æðardúni þar sem staðbundin framleiðsla er þeirra megin hugðarefni en hér má nálgast nánari upplýsingar um þau.“ Á opnuninni var fullt hús gesta sem skálaði í bjór frá villibrugghúsinu Grugg og Makk. Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: Opnunin var vel sótt.Nína Kristín Guðmundsdóttir Menningarunnendur létu sig ekki vanta.Nína Kristín Guðmundsdóttir Fatahönnuðurinn Gummi var í góðum gír.Nína Kristín Guðmundsdóttir List og bjór!Nína Kristín Guðmundsdóttir Hönnuðurinn Ýr, jafnan þekkt sem Ýrúrarí, mætti á svæðið.Nína Kristín Guðmundsdóttir Stuð og stemning.Nína Kristín Guðmundsdóttir Þessir skemmtu sér vel.Nína Kristín Guðmundsdóttir Þessi glæsilegi heymaður rokkaði vörurnar frá Erindreka.Nína Kristín Guðmundsdóttir Gestirnir tóku sig vel út í listræna umhverfinu.Nína Kristín Guðmundsdóttir Skvísulæti!Nína Kristín Guðmundsdóttir Stappað stuð.Nína Kristín Guðmundsdóttir Signý Jónsdóttir, ein af Erindreka þríeykinu.Nína Kristín Guðmundsdóttir Glaðir gestir!Nína Kristín Guðmundsdóttir Birta Rós og Ýr.Nína Kristín Guðmundsdóttir Ljós og skuggar.Nína Kristín Guðmundsdóttir Skál í boðinu!Nína Kristín Guðmundsdóttir Íris Indriða ræðir við gesti.Nína Kristín Guðmundsdóttir Skvísur.Nína Kristín Guðmundsdóttir Umhverfið skapaði mörg skemmtileg samtöl.Nína Kristín Guðmundsdóttir
Menning Tíska og hönnun Samkvæmislífið Mest lesið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Lífið samstarf Fleiri fréttir Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira